Hlaupasería FH og 66°N 2023 - Janúar

Um hlaupið

  • Vegalengdir5 km
  • Dagsetning26. janúar 2023
Sjá úrslit

Hlaupasería FH og 66°N 2023 verður haldin í janúar, febrúar og mars. Hlaupin eru jafnframt stigakeppni einstaklinga.

Staðsetning og tími

Hlaupin þrjú hefjast á göngustígnum gegnt íþróttahúsinu á Strandgötu í Hafnarfirði og hefjast hlaupin stundvíslega kl. 19:00 eftirfarandi daga:

  • Fimmtudaginn 26. janúar.
  • Fimmtudaginn 23. febrúar.
  • Fimmtudaginn 23. mars.

Skráning og þátttökugjald
  • Fullorðnir (15 ára og eldri) greiða 1.000 kr.
  • Börn (0-14 ára) greiða 500 kr. – ef greitt er fyrir öll hlaupin þrjú í einu kostar alls 1.000 kr.

Skráning og greiðsla fer fram á netskraning.is. Einnig er hægt að skrá sig á staðnum.

Tímataka

Tímatökuflögur verða afhentar í íþróttahúsinu á Strandgötu á hlaupadegi milli kl.17:30 - 18:45. Þátttakendur er vinsamlegast beðnir um að virða þau tímamörk. Án flögu fæst enginn tími og flagan virkar eingöngu sé hún fest við ökkla. Skila þarf tímatökuflögum eftir hlaup. Flögutími gefur nákvæman árangur þátttakenda óháð því hve aftarlega hann er við ræsingu. Markklukka verður í rásmarki.

Hraðastjórar verða í boði en þeir munu hlaupa á 20 mín, 25 mín og 30 mín.

Hlaupaleiðin

Hlaupið er frá upphafspunkti (stígur gegnt íþróttahúsinu á Strandgötu), eftir göngustígnum meðfram strandlengju Hafnarfjarðar til norðurs áfram Herjólfsbraut, beygt til vinstri inn Naustahlein og þaðan aftur inn á Herjólfsbraut og til baka sömu leið.

  • Leiðin er nokkuð flöt og ákjósanleg til bætinga.
  • Partur af hlaupaleiðinni er á götu og eru þátttakendur beðnir um að taka tillit til þess og sýna varúð. Brautargæsla verður á hlaupaleiðinni og við gatnamót þar sem að lokað verður fyrir umferð.
  • 1 km, 2 km, 3 km og 4 km keilur verða staðsettar á hlaupaleið.
  • Hlaupaleiðin er mæld af löggildum mælingamönnum.
  • Þátttakendur eru hvattir til að kynna sér hlaupaleiðina vel.

Hlaupasería FH og Bose ATL2016 320
Frá Hlaupaseríu FH

Salerni og fatageymsla

Salernisaðstaða er í íþróttahúsinu á Strandgötu og þar er einnig hægt að geyma fatnað. Athugið að engin ábyrgð er tekin á fatnaði eða öðru sem skilið er eftir í íþróttahúsinu né á hlaupleiðinni.

Aldursflokkar

Keppt verður í eftirfarandi aldursflokkum karla og kvenna;

  • 14 ára og yngri
  • 15-29 ára
  • 30-39 ára
  • 40-49 ára
  • 50-59 ára
  • 60 ára og eldri

Stigakeppni
  • 1.sæti gefur 15 stig
  • 2.sæti gefur 14 stig
  • 3.sæti gefur 13 stig
  • .......
  • 13.sæti gefur 3 stig
  • 14.sæti gefur 2 stig
  • 15.sæti gefur 1 stig

Samanlagður stigafjöldi í heildarúrslitum og aldursflokkum í öllum hlaupunum þremur gildir.

Séu þátttakendur jafnir að stigum eftir þrjú hlaup eru það úrslit í síðasta hlaupi (mars-hlaupi) sem skera úr um sætaröðun í stigakeppninni.

Úrslit

Öll úrslit ásamt stöðu í stigakeppninni verða birt á hlaup.is og á Facebook síðu Hlaupaseríu FH og 66°N eins fljótt og kostur er.

Verðlaun og lokahóf

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í karla og kvennaflokki óháð aldursflokki eftir hvert hlaup og fer verðlaunaafhending fram í íþróttahúsinu á Strandgötu strax að loknu hlaupi.

Verðlaunaafhending fyrir hlaupaseríuna fer svo fram á lokahófi sem haldið verður í Kaplakrika (dags. auglýst síðar).

Þar verða heildarsigurvegarar fyrir hlauparöðina í karla- og kvennaflokki verðlaunaðir fyrir samanlagðan árangur í öllum þremur hlaupunum auk þess að verðlaunað verður fyrir fyrstu þrjú sætin í hverjum aldursflokki karla og kvenna.

Einnig verða dregin út glæsileg útdráttarverðlaun þar sem möguleikarnir fara eftir fjölda hlaupa þátttakanda;

  • Þrjú hlaup = þrefaldar vinningslíkur
  • Tvö hlaup = tvöfaldar vinningslíkur
  • Eitt hlaup = einfaldar vinningslíkur

Frekari upplýsingar

Hægt er að fylgjast með hlaupinu á Facebook síðu hlaupsins.

Þátttakendur fá frítt í sund að hlaupi loknu í Suðurbæjarlaug (Hringbraut 77)

Fyrirvari

Keppendur taka þátt í Hlaupaseríu Hlaupahóps FH á eigin ábyrgð. Framkvæmdaaðilar geta á engan hátt verið ábyrgir fyrir skaða sem keppendur hugsanlega verða fyrir eða valda öðrum meðan á þátttöku í hlaupinu stendur.  Með skráningu í þennan viðburð staðfestir þátttakandi skilning á þessu og samþykkir skilmála hlaupsins.