Hlaupasería FH og Bose 2021 - Janúar

Um hlaupið

  • Vegalengdir5 km
  • Dagsetning25. janúar 2021
Sjá úrslit

Hlaupasería FH og Bose verður með breyttu sniði árið 2021. Hvert og eitt hlaup verður ekki á ákveðnum degi né á ákveðnum tíma. Þátttakendur þurfa að hafa aðgang að Strava hreyfingarforritinu og skrá hvert hlaup sem æfingu á Strava. Þátttakendur geta tekið þátt hvenær sem er á fyrirfram ákveðnu tímabili sem er opið tímabundið.

Staðsetning og tími
  • Janúar-hlaup
    Gluggi opnast kl. 18.00, mánudaginn 25. janúar og lokast á miðnætti fimmtudaginn 28. janúar.
  • Febrúar-hlaup
    Gluggi opnast kl. 18.00, mánudaginn 22. febrúar og lokast á miðnætti fimmtudaginn 25. febrúar.
  • Mars-hlaup
    Gluggi opnast kl. 18.00, mánudaginn 22. mars og lokast á miðnætti fimmtudaginn 25. mars.

Skráning og þátttökugjald

Aðeins er tekið við forskráningu á netinu; ekki verður hægt að skrá sig á staðnum eins og ef um venjulegt hlaup væri að ræða. Forskráningu fyrir hvert hlaup lýkur kl. 16.00 á þeim degi sem gluggi til að hlaupa leiðina lokast.

  • Fullorðnir (15 ára og eldri) greiða 1.000 kr. – ef greitt er fyrir öll hlaupin þrjú í einu kostar alls 2.000 kr.
  • Börn (0-14 ára) greiða 500 kr. – ef greitt er fyrir öll hlaupin þrjú í einu kostar alls 1.000 kr.

Skráning og greiðsla fer fram á timataka.net.

Tímataka

Engin formleg tímataka er til staðar heldur verður byggt á Strava-segment.  Engin markklukka er í rásmarki og engir hraðastjórar verða í boði.

Hlaupaleiðin

Hlaupaleiðin er óbreytt frá árinu 2020, sjá Strava segment og neðst á þessari síðu. Einnig á Garmin Connect.

Hlaupið er frá upphafspunkti (stígur gegnt íþróttahúsinu á Strandgötu), eftir göngustígnum meðfram strandlengju Hafnarfjarðar til norðurs áfram Herjólfsbraut, beygt til vinstri inn Boðahlein og þaðan aftur inná Herjólfsbraut og tilbaka sömu leið. Leiðin er nokkuð flöt og ákjósanleg til bætinga.

Partur af hlaupaleiðinni er á götu og göngustígum. Eru þátttakendur beðnir um að taka tillit til þess og sýna ítrustu varúð og tillitssemi. Þátttakendur eru einnig hvattir til að kynna sér hlaupaleiðina vel.

Að loknu hverju hlaupi þarf þátttakandi að skrá tíma sinn sérstaklega á netið.  Í athugasemd skal setja link inn á Strava æfinguna sem staðfestir að hlaupið hafi verið á gefnu tímabili. Vinsamlegast skráið tímann á Segmentinu inn á síðuna. Æfingarnar þurfa að vera Public (ekki Private) svo þær birtist á Strava segmentinu.

Hlaupasería FH og Bose ATL2016 320
Frá Hlaupaseríu FH
Þjónusta á hlaupastað

Þar sem hlaupin teygja sig yfir nokkra daga er engin þjónusta við hlaupara líkt og ef um hefðbundinn viðburð væri að ræða. Ekki eru salerni á staðnum, né aðstæða til þess að geyma hluti eins og síðustu ár. Að auki er sundferð ekki innifalin í þátttökugjaldi þetta árið.

Verðlaun

Allir þeir sem skrá sig og hlaupa munu eiga kost á verðlaunum. ATH, engin skráning – ekki möguleiki á verðlaunum. Öllum er þó frjálst að spreyta sig á leiðinni en aðeins þeir sem skrá sig sérstaklega í hlaup eiga kost á verðlaunum. Óháð aldri fær fljótasta kona hvers hlaups 10 stig, sú í öðru sæti 9 stig og þriðja sætið gefur 8 stig. Sama á við karla; fljótasti karl óháð aldri fær 10 stig, annað sæti gefur 9 stig og það þriðja 8 stig.

Í lok hlaupaseríunar (eftir marshlaupið) verður tekinn saman listi yfir þrjár stigahæstu konur og þrjá stigahæstu karla, óháð aldri og þeim veitt verðlaun.  Allir þátttakendur (skráning + hlaup) eiga svo kost á að vinna sér inn útdráttarverðlaun.

Frekari upplýsingar

Hægt er að fylgjast með hlaupinu á Facebook síðu hlaupsins.

Hver og einn þátttakandi er á eigin ábyrgð (disclaimer)

Keppendur taka þátt í Hlaupaseríu FH og BOSE á eigin ábyrgð. Framkvæmdaaðilar geta á engan hátt verið ábyrgir fyrir skaða sem keppendur hugsanlega verða fyrir eða valda öðrum meðan á þátttöku í hlaupinu stendur.  Með skráningu í þennan viðburð staðfestir þátttakandi skilning á þessu og samþykkir skilmála hlaupsins.