Í fimmta sinn verður haldið utanvegarhlaup í Mývatnssveit, frá Dimmuborgum að Jarðböðunum við Mývatn þann 26. maí 2023. Hlaupið er 9,4 km langt í gegn um einstaka náttúru Dimmuborga, hraunið, Hverfellssandinn og endar svo við Jarðböðin við Mývatn.
Skráning og þátttökugjald
Þátttökugjald: 9.500kr
Skráning á netskraning.is.
Innifalið í þátttöku er flögutímataka, aðgangur í Jarðböðin við Mývatn og léttar veitingar í lok hlaups.
Aðrar upplýsingar
ATH. Fólksflutningur frá Jarðböðunum að Dimmuborgum er EKKI innifalin. Hægt verður að kaupa sér rútumiða frá Jarðböðunum að Dimmuborgum, brottför rútunnar er kl. 16:45. Rútumiðinn kostar 2.000 kr. og aðeins er hægt að kaupa hann um leið og miðar í hlaupið eru keyptir.
Dagskrá:
- 16:00 - Mæting í Kaffi Borgir. Skráning opnar.
- 18:00 - Hlaup ræst. Hefst við inngang í Dimmuborgir (á bílastæði).