Þátttökugjald

  • 5 km4.000 kr
  • 2 km3.000 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir2 km, 5 km
  • Dagsetning28. ágúst 2024
Sjá úrslit

Hundahlaupið verður haldið í annað sinn miðvikudaginn 28. ágúst nk. Hlaupið var fyrst haldið á Seltjarnarnesi 2022 og tókst einstaklega vel til, en þátttakendur töldu um 100 talsins og voru mættir til leiks hundar af öllum stærðum og gerðum með eigendum sínum á öllum aldri.

Um er að ræða einstakan viðburð þar sem hundar af öllum stærðum og gerðum taka þátt með eigendum sínum. 

Hundahlaupið 1U12
Vegalengdir og tímasetningar

Hundahlaupið fer að þessu sinni fram í Mosfellsbæ, þar sem farin verður sérstaklega falleg hlaupa og gönguleið sem hefst við flötina fyrir neðan Reykjalund. Best er að leggja bílum á bílastæðið bakvið Reykjalund.

Svæðið opnar kl 16:00, sameiginleg upphitun hefst kl. 17:30 og hlaupið ræst kl 18:00. 

Í boði eru tvær hlaupaleiðir. Annars vegar 5 km tímataka og hins vegar 2 km skemmtiskokk, leið fyrir þá sem vilja taka því rólega og njóta í fallegu umhverfi. 

Fyrir hverja er viðburðurinn og hvernig fer þetta fram?

Hundahlaupið er opið öllum sem vilja hreyfa sig með hundinn sinn. Hundahlaupið er fyrir alla hunda og allt fólk óháð aldri og fyrri störfum, en hlaupið er bæði fyrir vana hlaupara og þá sem vilja eiga skemmtilega stund með hundinum sínum. 

Canicross (canine = hundur + cross country) eða hundahlaup á vaxandi fylgi að fagna á Íslandi. Canicross er svokölluð hunda drifin íþrótt þar sem hlauparinn getur verið með belti utan um sig og teygjutaum sem festist í beisli hundsins. Þannig togar hundurinn í hlauparann þegar hann er með báða fætur á lofti. Rétt er að taka fram að engin sérstök krafa er gerð á búnað í Hundahlaupinu, Non-stop dogwear verður með sölubás á staðnum þar sem hægt verður að ráðleggingar um val búnaði. 
Hægt er að lesa um Canicross á vefnum.

Á keppnissvæðinu verða tjaldbúðir með veitingum , kynningar og sölubásar á vegum styrktaraðila sem og hvatningastöð.

Hundahlaupið 1U20
Af hverju hundahlaup ?

Hundahlaupið er frábær lýðheilsu viðburður fyrir hundaáhuga fólk sem vill sýna sig og sjá aðra, en markmið Hundahlaupsins er að kynna öðruvísi nálgun á útivist með hundum, efla félagsleg tengsl hundaeiganda og sýnileika hunda í samfélaginu okkar. 

Skráning og verðlaun

Þátttökugjald er 4.000 kr fyrir 5 km en 3.000 kr fyrir 2 km skemmtiskokk - þátttökuverðlaun fylgja hverri skráningu (frjálst er að skrá fleiri en einn þátttakanda með hverjum hundi þó það sé ekki nauðsynlegt en aðeins aðeins eitt númer og þátttökuverðlaun fylgja hverri skráningu).

Skráningu lýkur hér á hlaup.is kl. 12 miðvikudaginn 28. ágúst. Hægt er að skrá sig á staðnum með því að mæta tímanlega.

Vegleg verðlaun verða veitt fyrir einstaklinga með bestu þrjá tíma bæði í karla- og kvennaflokki í 5 km tímatöku. 
Einnig verða útdráttarverðlaun í boði styrktaraðila. 

Hámarksfjöldi í 5 km hlaupið er 80 hlauparar og 120 hlauparar í 2 km hlaupið.

Afhending hlaupagagna

Rásnúmer verða afhent þriðjudaginn 27. ágúst milli kl. 12 og 16. Afhending fer fram hjá Dýrheimum, Royal Canin á Íslandi í Víkurhvarfi 5, 203 Kópavogi. Hundar eru velkomnir í salinn, en þar mun Non-stop dogwear vera með sölubás þar sem þátttakendum gefst kostur á að versla búnað á afslætti. 

Þeir sem skrá sig eftir afhendingu gagna á þriðjudegi, geta sótt gögnin sín fyrir hlaup á staðnum.

Hundahlaupið Konur Ad Njota
Umsjón

Áhugafólk um Canicross á Íslandi.

Styrktaraðilar

Royal Canin og Non-stop dogwear

Hundahlaupsponsorlogo Samsett