Í tilefni af Degi Jarðar er þér boðið að taka þátt í Jarðarhlaupi í Elliðaárdal. Dagur Jarðar er alþjóðlegur dagur sem haldinn er 22. apríl ár hvert og sameinar fólk um allan heim í því að vekja athygli á umhverfis- og loftslagsmálum og hvetja til aðgerða.Þema ársins 2026 er Our Power, Our Planet sem er áminning um að raunverulegar breytingar koma til þegar fólk kemur saman og grípur til aðgerða.
Vegalengd
Við hittumst og hlaupum eða göngum 6,6 km saman. Við komum saman til að hreyfa okkur, njóta náttúrunnar og fagna deginum.
Skógræktarfélag Íslands verður á staðnum og gefst gestum tækifæri til að kynna sér starf þeirra og styrkja verkefni þeirra Opnir skógar. Á þann hátt getum við látið gott af okkur leiða í baráttunni við loftslagsbreytingar.
- DJ Margeir sér um tónlist og stemningu á svæðinu.
- 66°Norður veitir 5 heppnum þátttakendum verðlaun.
Við hvetjum þátttakendur til að koma gangandi, hlaupandi eða með almenningssamgöngum. Frítt er á viðburðinn, rásnúmerum verður útdeilt á staðnum.
Staðsetning og tímasetning
Hlaupið hefst við Elliðaárstöð kl. 17:00 og viðburðinum lýkur klukkan 19:00.
Skilmálar
Þátttakendur taka þátt á eigin ábyrgð og eru hvattir til að meta eigin getu og aðstæður. Framkvæmdaaðilar bera ekki ábyrgð á slysum eða tjóni sem kunna að verða í tengslum við þátttöku í viðburðinum.
