Kerlingarskarðshlaupið er 14 km langt utanvegahlaup sem fer fram laugardaginn 23. maí kl. 11.
Hlaupið hentar bæði reyndum hlaupurum og þeim sem vilja nýta það sem æfingahlaup snemma sumars, til dæmis fyrir lengri utanvegahlaup.
Hlaupaleiðin
Hlaupið er á malarslóða í gegnum hið sögufræga Kerlingarskarð á Snæfellsnesi. Leiðin tengir saman suður- og norðurhluta Snæfellsness og býður upp á stórbrotna náttúru í Kerlingarskarði þar sem kerlingin sjálf gnæfir yfir hlaupurum.
Hlaupið hefst á norðanverðu nesinu, við afleggjarann að Kerlingarskarði, og lýkur á sunnanverðu nesinu. Gert er ráð fyrir rútuferðum frá Stykkishólmi að rásmarki (10 mín keyrslufjarlægð),
Ein til tvær drykkjarstöðvar verða á leiðinni.
Skráning og keppnisgögn
Þátttökugjöld eru 3.500 kr. Skráningarupplýsingar væntanlegar.
Hægt er að skrá sig til 21. maí og keppnisgögn eru afhent föstudaginn 22. maí og laugardaginn 23. maí í íþróttahúsinu í Stykkishólmi.
Hámarksfjöldi þátttakenda verða 70 manns.
Verðlaun
Verðlaun eru veitt fyrir fyrstu þrjú sætin. Engir flokkar eru í hlaupinu.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar gefur: Emil Einarsson, sími 858-1258, emilsalfr@gmail.com
