Um hlaupið

  • Vegalengdir3 km, 5 km, 10 km
  • Dagsetning19. maí 2026

LÍF styrktarfélag heldur í góðu samstarfi við aðalstyrktaraðila hlaupsins Útilíf og Sjóvágötuhlaupið Lífssporið þriðjudaginn 19. maí. 

Tímasetning og staðsetning

Hlaupið verður ræst þriðjudaginn 19. maí, kl. 18 við Braggann í Nauthólsvík og verður hlaupið/gengið um Fossvogsdalinn. Sameiginleg upphitun hefst kl. 17:45 við rásmarkið.

Vegalengdir og leiðin

Boðið verður upp á 5 km og 10 km hlaupi með flögutímatöku (Tímataka ehf) ásamt 3 km göngu/skemmtiskokki án tímatöku.

Sjá kort af hlaupaleiðinni neðst á þessari síðu.

Hlaupið er FRÍ vottað sem gefur hlaupurum kost á að fá úrslit sín skráð í afrekaskrá.

Skráning og þátttökugjald

Skráningu á vefnum er opin fram að ræsingu 19. maí en einnig er hægt að skrá sig á staðnum á keppnisdegi frá kl. 15:30-16 :15.

Þátttökugjald í forsölu á vefnum fyrir kl. 23:59 sunnudaginn 17. maí:

  • 2.900 kr. fyrir 14 ára og yngri (f. 2012 og síðar)
  • 5.500 kr. fyrir 15 ára og eldri (f. 2011 og fyrr)

Eftir það hækkar þátttökugjald í:

  • (óbreytt) 2.900 kr. fyrir 14 ára og yngri (f. 2012 og síðar)
  • 6.500 kr. fyrir 15 ára og eldri (f. 2011 og fyrr)

Sjóvá styrkir Líf um 1.000 kr. fyrir hvern þátttakanda í Lífssporinu. Þín skráning telur.

*Allir sem skrá sig fyrir 15. maí komast í pott og eiga möguleika á að vinna glæsilegt Garmin Forerunner® 165 hlaupaúr.

Afhending gagna verður í verslun Útilífs í Skeifunni mánudaginn 18. maí frá kl. 11:00 til 18:00.

Afhending gagna fer einnig fram á sjálfan hlaupadaginn þriðjudaginn 19. maí kl. 16:00 - 17:00 í Bragganum Nauthólsvík.

Verðlaun

Glæsileg verðlaun í boði Útilífs verða veitt fyrir 1. 2. og 3. sæti karla og kvenna í 5 km og 10 km hlaupi og Sjóvá veitir tveim heppnum þátttakendum glæsileg hlaupaúr. Auk þess sem fjöldi glæsilegra útdráttarverðlauna verður veitt þátttakendum úr öllum flokkum.

Söfnunarfé

Í ár rennur allur ágóði af hlaupinu í söfnun fyrir nýju leghálsspeglunartæki. Við leghálsspeglun er leghálsinn skoðaður og vefjasýni tekin og er þetta mikilvægur liður í að finna alvarlegar breytingar og þannig lækka nýgengi og dánartíðni á leghálskrabbameini. Nýja leghálsspeglunartækið bíður upp á stafræna lausn og þannig fást háskerpumyndgæði, hægt að sýna myndir á skjá fyrir sjúklinginn, vista myndir í sjúkraskrá og auðvelda kennslu, m.a. fyrir læknanema og sérnámslækna.

Aðrar upplýsingar
  • Viðburðurinn er haldinn af LÍF styrktarfélag, kt. 501209-1040.
  • Símanúmer: 896 6334 (Vera Víðisdóttir)
  • Fyrirspurnir sendist á: lif@lifsspor.is