Um hlaupið

  • Vegalengdir5 km, 10 km
  • Dagsetning30. maí 2024
Sjá úrslit

LÍF styrktarfélag heldur í góðu samstarfi við aðalstyrktaraðila hlaupsins Útilíf og Sjóvágötuhlaupið Lífssporið fimmtudaginn 30. maí. Í ár rennur allur ágóði af hlaupinu í söfnun fyrir tveim nýjum tækjum til legspeglunar í staðdeyfingu. Legspeglun er gerð til að skoða inn í legið, greina mögulega sjúkdóma þar eins og æxli, vöðvahnúta, samvexti, sepa og meðfædda galla. Að auki er legspeglun stundum notuð til að greina orsakir ófrjósemi og óreglulegra blæðinga. Þessar rannsóknir voru áður framkvæmdar í svæfingu en með þessum nýju tækjum gefst kostur á aðgerð án svæfingar og því mun minna inngripi fyrir skjólstæðinga kvennadeildarinnar sem geta nú farið heim strax að lokinni speglun.

Tímasetning og staðsetning

Hlaupið verður ræst fimmtudaginn 30. maí, kl. 18 við Braggann í Nauthólsvík og verður hlaupið/gengið um Fossvogsdalinn. Sameiginleg upphitun hefst kl. 17:45 við rásmarkið.

Vegalengdir og leiðin

Boðið verður upp á 5 km göngu ásamt 5 km og 10 km hlaupi með flögutímatöku (Tímataka ehf).

Sjá kort af hlaupaleiðinni neðst á þessari síðu.

Hlaupið er FRÍ vottað sem gefur hlaupurum kost á að fá úrslit sín skráð í afrekaskrá.

Skráning og þátttökugjald

Skráningu á vefnum er opin fram að ræsingu 30. maí en einnig er hægt að skrá sig á staðnum á keppnisdegi frá kl. 16.30-17.30.

Þátttökugjald í forsölu á vefnum fyrir kl. 23:59 mánudaginn 27. maí:

  • 2.500 kr. fyrir 14 ára og yngri (f. 2010 og síðar)
  • 4.900 kr. fyrir 15 ára og eldri (f. 2009 og fyrr)

Eftir það hækkar þátttökugjald í:

  • (óbreytt) 1.500 kr. fyrir 14 ára og yngri (f. 2010 og síðar)
  • 5.900 kr. fyrir 15 ára og eldri (f. 2009 og fyrr)

Afhending gagna verður í verslun Útilífs Skeifunni 11d, þriðjudaginn 28. maí og miðvikudaginn 29. maí frá kl. 11:00 til 18:00.

Afhending gagna fer einnig fram á sjálfan hlaupadaginn fimmtudaginn 30. maí kl. 16:30 - 17:30 fyrir utan Braggann Nauthólsvík.

Verðlaun

Glæsileg verðlaun í boði Útilífs verða veitt fyrir 1.sæti karla og kvenna í 5 km og 10 km hlaupi og Sjóvá veitir tveim heppnum þátttakendum glæsileg hlaupaúr. Auk þess sem fjöldi glæsilegra útdráttarverðlauna verður veitt þátttakendum úr öllum flokkum.

Aðrar upplýsingar
  • Viðburðurinn er haldinn af LÍF styrktarfélag, kt. 501209-1040.
  • Símanúmer: 696 4600 (Vera Víðisdóttir)
  • Fyrirspurnir sendist á: lif@lifsspor.is