Ljósanæturhlaupið fer fram miðvikudaginn 4. september kl. 18:30 og er árlegur viðburður sem fram fer í tengslum við Ljósanótt í Reykjanesbæ. Framkvæmd hlaupsins er í höndum Vikars Sigurjónssonar. Hlaupið er um götur Reykjanesbæjar. Ljósanæturhlaupið er tilvalið fyrir alla fjölskylduna og hægt að finna vegalendir við allra hæfi ásamt því að styðja góðan málstað.
500 kr. af hverri skráningu renna til Minningarsjóðs Ölla. Minningarsjóður Ölla styrkir börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónarmanna.
Vegalengdir
Keppt er í eftirtöldum vegalengdum: 3,5 km, 7 km og 10 km. Flögu tímamæling verður notuð í Ljósanæturhlaupinu í öllum vegalengdum.
Hægt er að skoða kort af leiðunum í öllum vegalengdum hér neðst á þessari síðu. Einnig á á Facebooksíðu "Vikar Sigurjónsson", á skráningarsíðu hlaupsins og í Sundmiðstöð/Vatnaveröld við rásmark.
Þátttakendur eru hvattir til að kynna sér vel hlaupaleiðir áður en hlaupið er af stað.
Verðlaun
Hlaupið er aldursflokkaskipt í 7 km og 10 km og eru verðlaun fyrir besta árangur í öllum flokkum í 7 km og 10 km. Í 3,5 km eru veitt verðlaun fyrir 15 ára og yngri og 16 ára og eldri.
Glæsileg útdráttarverðlaun sem dregin verða úr nöfnum allra þátttakenda.
Staðsetning, dagskrá og aðstaða
Rásmark og endamark verða við Sundmiðstöðina, Vatnaveröld, Sunnubraut 31, 230 Reykjanesbæ. Búnings-og sturtuaðstaða er í Sundmiðstöðinni, Reykjanesbær býður þátttakendum í sund að hlaupi loknu.
- Ræsing í 10 km kl. 18:30
- Ræsing í 7 km kl. 18:35
- Ræsing í 3,5 km kl. 18:40
- Verðlaunaafhending verður um kl. 19:50
Þátttökugjald og skráning
Skráning á netskraning.is. Við hvetjum alla til að nýta sér forskráningu til að forðast óþarfa stress. Skráningargjöld eru eftirfarandi:
- 3,5 km: 2.000 kr fyrir 15 ára og eldri, 1.500 kr fyrir 14 ára og yngri.
- 7 km og 10 km: 3.000 kr fyrir 15 ára og eldri, kr. 2.000 fyrir 14 ára og yngri.
Eftir miðnætti mánudaginn 3. september hækkar verðið um kr. 1.000.
Nánari upplýsingar
Umsjón með hlaupinu hefur Vikar Sigurjónsson sími 899-0501.
