Isavia innanlands ætlar að opna flugvöllinn og hleypa hlaupurum inn á flugbrautina til að taka þátt í Miðnæturhlaupi Reykjavíkurflugvallar. Hlaupið fer fram þriðjudaginn 4. júlí kl. 23:00. Sameiginleg upphitun hefst kl. 22:45 við rásmarkið.
Staðsetning
Hlaupið byrjar fyrir framan viðbúnaðarþjónustu flugvallarins, þar sem hleypt verður inn að framan og í gegnum bygginguna. Ákveðið verður á hlaupdegi hvort hlaupið verður réttsælis eða rangsælis og fer það eftir vindáttinni.
Skyldubúnaður og varúðarráðstafanir
- Hlauparar þurfa að vera í sýnileikavesti eða skærum fatnaði til öryggis. Hægt er að fá lánað sýnileikavesti á staðnum hjá Isavia.
- Gæta þarf þess að vera ekki með neina lausa muni á sér eða í vösum og tilkynna samstundis flugvallayfirvöldum ef fólk telur sig hafa týnt einhverju út á flugbraut.
- Með reglulegu millibili verða viðbragðsbílar flugvallaþjónustunnar með eftirlit. Flugvöllurinn er lokaður en sjúkra- og neyðarflug er alltaf möguleiki og koma þau þá með fyrirvara. Ef viðbragðsbílar kveikja á blikkljósum og blása í þokulúðrana, þurfa hlauparar að ryðja flugbrautina strax yfir á akbrautina og koma sér til baka að startinu.
Vegalengdir
- 3,5 km
- 7 km (sami hringur hlaupinn tvisvar)
Skemmtileg og slétt hlaupaleið og frábær upplifun. Engin drykkjarstöð í hlaupinu, bara við endamark. Engin tímataka.
Hlaupaleiðir
Sjá kort hér neðar í lýsingunni.
Skráning og skráningargjöld
Skráning fer fram hér á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu. Skráningargjald er 1.900 kr í báðar vegalengdir. Þátttakendur hlaupa á eigin ábyrgð. Max 200 manns í hlaupið.
Skráning er opin til kl. 20 á hlaupdag þann 4. júlí.
Útdráttarverðlaun
Útdráttarverðlaun þar sem dregið verður úr öllum skráðum þátttakendum.
Þjónusta
Við endamark verður boðið upp á létta hressingu.
Aðrar nauðsynlegar upplýsingar fyrir hlaupara
Á kortinu er sýnd rauð ör, en þar verður hleypt inn að framan og í gegnum bygginguna (sjá líka mynd hér fyrir neðan). Ákveðið verður samdægurs hvort hlaupið verði rangsælis eða réttsælir m.t.t. vindáttar um kvöldið.
![Flugvallahlaup Staðsetningb](/media/2568/flugvallahlaup-stadsetningb.jpg?anchor=center&mode=crop&width=1200&height=720&rnd=133638270460000000)
Með reglulegu millibili verða viðbragðsbílar flugvallaþjónustunnar. Flugvöllurinn er lokaður en sjúkra- og neyðarflug er alltaf möguleiki og koma þau þá með fyrirvara. Ef viðbragðsbílar kveikja á blikkljósum og blása í þokulúðrana, þurfa hlauparar að ryðja flugbrautina strax yfir á akbrautina (gular pílur) og koma sér til baka að starti/marki.
Grænt svæði eru möguleg bílastæði.
Nánari upplýsingar
Þórður Reyr Arnarson: thordur.arnarson@isavia.is