Þátttökugjald

  • 2 km - Ævintýrahlaup1.500 kr
  • 3 km - Steinninn3.900 kr
  • 14 km - Mt. Esja Ultra II6.900 kr
  • 45 km - Mt. Esja Marathon14.900 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir2 km, 3 km, 14 km, 45 km
  • Dagsetning19. júní 2021
Sjá úrslit Myndasafn úr hlaupinu

Mt. Esja Ultra er alvöru fjallahlaup sem haldið verður í tíunda sinn laugardaginn 19. júní 2021. Þetta verður sannkallað afmælishlaup og mikið lagt í umgjörð mótsins.

Mt. Esja Ultra var kosið hlaup ársins 2012 og utanvegahlaup ársins 2013 og 2015 á Hlaup.is.

Vegalengdir í boði
  • Mt. Esja Maraþon: Vegalengd 45 km, hækkun 3200m  - 14.900 kr.
  • Mt. Esja Ultra II, tvær ferðir: Vegalengd 14 km, hækkun 1200m  - 6.900 kr.
  • Steinninn – THE ROCK: Vegalengd 3 km, hækkun 600m  - 3.900 kr.
  • NÝJUNG 2021!  Ævintýrahlaup í Esjuskógi fyrir spræka krakka. Vegalengd 2 km, lítil hækkun - 1.500 kr.

Staðsetning

Hlaupið verður ræst frá Esjustofu á mismunandi tímum (sjá rástíma hér að neðan). Keppendur skulu mæta tímanlega og þeir sem keppa í maraþoninu verða að skrá sig sérstaklega hjá hlaupastjóra fyrir keppni.

Rástímar
  • Mt. Esja maraþon - kl. 8:00
  • Steinninn – The Rock kl. 11:00
  • Ævintýrahlaup í Esjuskógi – kl. 12:00
  • Mt. Esja Ultra II ferðir - kl. 13:00

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin hjá körlum og konum í öllum vegalengdum.

Skráningar

Skráning hefst kl. 12:00 þann 15. janúar á Hlaup.is og lokar þegar hámarksfjölda hefur verið náð eða kl. 24:00 föstudaginn 18. júní.

Gögn verða afhent föstudaginn 18. júní á milli kl. 12:00-18:00 í verslun 66°Norður í Faxafeni.

Fjöldi sæta í boði í hverri vegalengd:

  • Mt. Esja Ultra II ferðir – 200 þátttakendur
  • Mt. Esja maraþon – 100 þátttakendur
  • Steinninn, The Rock – 100 þátttakendur

Innifalið í skráningargjaldi

  • Afmælisgjöf í tilefni 10 ára afmæli hlaupsins til allra þátttakenda
  • Esjubjórglasið fyrir þá sem klára hlaupin innan tímamarka (þátttökupeningur fyrir krakka)
  • Finisher gjöf frá 66°Norður fyrir þá sem klára maraþonið innan tímamarka
  • Tímataka, númer og brautargæsla
  • Íþróttadrykkir og næring á drykkjarstöð við Esjustofu
  • Léttar veitingar

Nánari upplýsingar

 

Kort

Hér fyrir neðan eru kort og hæðarkort af leiðunum í Mt. Esja Ultra hlaupinu.

Mt. Esja Ultra Marathon Kort
Mt. Esja Ultra Maraþon kort

Mt. Esja Ultra Marathon Elevation Kort
Mt. Esja Ultra Maraþon hæðarkort

Mt. Esja Ultra II Kort
Mt. Esja Ultra II kort

Mt. Esja Ultra II Elevation
Mt. Esja Ultra II hæðarkort

Útbúnaður

Sterklega er mælt með því að hver keppandi hafi eftirfarandi útbúnað til taks (skyldubúnaður fyrir keppendur í maraþoni):

  • Plastmál til að sækja vatn í læk og á drykkjarstöð
  • Álteppi
  • Farsíma
  • Nægilegt magn af næringu og vökva (0,5-1,0 L) fyrir hvern hring
  • Teygjubindi
  • Vatnsheldan jakka úr öndunarefni
  • Húfu eða buff og hanska

Mælt er með að hafa meðferðis:

  • Göngustafi
  • Drykkjarbelti eða vatnspoka
  • Derhúfu
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn
  • Núningsáburð og blöðruplástra

Heimilt verður fyrir maraþonhlaupara að geyma aukabúnað  á sérstöku svæði við Esjustofu. Keppendur mega fá aðstoð frá einum utanaðkomandi aðila við Esjustofu. Það er mikilvægt að keppendur skipuleggi næringu, útbúnað, klæðnað og aðstoð vel fyrir keppni. Hlauparar þurfa að hafa meðferðis eigin næringu sem dugar út allt hlaupið.

Reglur

Aldurstakmörk

  • Steinninn: 14 ára
  • Tvær ferðir: 16 ára
  • Maraþon: 18 ára

Tímatakmörk

  • Steinninn: 90 mínútur
  • Mt. Esja Ultra II: 4 klst.
  • Mt. Esja Maraþon: 8 klst. þegar lagt er af stað í síðasta sinn upp Esjuna.

Keppendur skuldbinda sig til að:

  • Stunda viðeigandi þjálfun til að ljúka keppni innan tímamarka.
  • Stunda heiðarlega keppni og fylgja settri leið skipuleggjenda.
  • Bera virðingu fyrir náttúrunni og henda engu rusli á leiðinni nema við Esjustofu.
  • Klæða sig eftir veðri og veðurspá.
  • Hafa með sér nægja næringu og vökva til að klára keppni.
  • Virða reglur um utanaðkomandi aðstoð en aðeins einn einstaklingur má aðstoða hvern keppanda hverju sinni með búnað og næringu á sérstöku svæði við Esjustofu. Öll önnur utanaðkomandi aðstoð er bönnuð nema í neyð.
  • Sýna öðrum keppendum og göngufólki tillitsemi á leiðinni.
  • Hafa keppnisnúmer sýnilegt allan tímann.
  • Skrá sig hjá starfsmanni við Stein (checkpoint) og Esjustofu í hverjum hring.
  • Keppendum ber að aðstoða aðra keppendur í neyð þar til önnur viðeigandi hjálp berst.
  • Keppnisstjóri ber ekki ábyrgð á hlaupurum vegna utanaðkomandi áhrifa eins og veðurs og náttúruhamfara.
  • Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppninni en eru hvattir til að leita viðeigandi aðstoðar ef um slys eða veikindi er að ræða..
  • Keppnisstjóri getur vísað öllum frá keppni sem fylgja ekki settum reglum.

Keppnisstjórum er heimilt að aflýsa eða stoppa hlaupið vegna utanaðkomandi aðstæðna