Þátttökugjald

  • 3 km0 kr
  • 10 km5.500 kr
  • 21 km8.000 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir3 km, 10 km, 21 km
  • Dagsetning13. maí 2023
Sjá úrslit

Mýrdalshlaupið,  skemmtilegt og krefjandi utanvegahlaup í mikilli náttúrufegurð, verður haldið í tíunda sinn laugardaginn 13. maí 2023. Skráning hefst kl. 12 fimmtudaginn 19. janúar og þá er hægt að smella á skráningarlink sem birtist hér fyrir ofan. Nánari upplýsingar um bolina sem hægt er að kaupa eru hér fyrir neðan.

Vegalengdir

Boðið verður upp á þrjár vegalengdir; 21 km með 1000 m hækkun og tæpa 10 km með 400 m hækkun. Þá er einnig boðið upp á 3 km skemmtiskokk.

  • 21 km - 1000 hæðarmetrar - Ræst kl. 12:00 - Viðurkennd ITRA braut sem gefur 1 punkt
  • 10 km - 400 hæðarmetrar - Ræst kl. 12:30
  • 3 km skemmtiskokk - Ræst kl. 13:00

MYR2020 408
Hlaupið upp á Reynisfjalli

Skráning, þátttökugjald og afhending gagna

Skráning fer fram á hlaup.is og hefst fimmtudaginn 19. janúar 2023 kl. 12:00. Skráningu fyrir 10 km og 21 km lýkur annað hvort þegar hámarksfjölda er náð eða miðnætti 6. maí.

  • 21 km - Þátttökugjald er 8.000 kr - 17 ára (á árinu) aldurstakmark
  • 10 km - Þátttökugjald er 5.500 kr - 16 ára (á árinu) aldurstakmark
  • 3 km skemmtiskokk - Frítt - Ekkert aldurstakmark

Hámarksfjöldi þátttakenda er 450 manns í 21 km og 10 km samtals.

Ekki verður biðlisti í hlaupið, ekki verður hægt að fá endurgreitt, en leyfilegt er að gera nafnabreytingar þar til viku fyrir hlaup.

Afhending skráningargagna verður í versluninni Sportvörur, Dalvegi 32A, Kópavogi miðvikudaginn 10. maí, kl. 11-18. Þeir hlauparar sem ekki eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu geta sótt gögnin á hlaupdegi í Vík.

Innifalið í þátttökugjaldi er brautarvarsla, tímataka með flögu og hressing eftir hlaup.

Bolir

Hægt er að kaupa boli frá 2XU merkta Mýrdalshlaupinu sem hluta af skráningarferlinu, sjá mynd hér fyrir neðan. Til að velja stærðina sem hentar þér getur þú kíkt á stærðartöflu fyrir bolina.

Hægt er að velja karlasnið (XS,S,M,L,XL,XXL) eða kvennasnið (XXS,XS,S,M,L,XL)

Myrdalshlaup Bolir
Bolir fyrir Mýrdalshlaupið 2023
Staðsetning og hlaupaleið

Keppendur mæti við Víkurskóla í Vík í Mýrdal um 30 mínútum fyrir ræsingu og hópurinn gengur/skokkar saman niður í Víkurfjöru þar sem hlaupið verður ræst. Búast má við 5-10 mínútna göngu.

Hægt er að sjá báðar hlaupaleiðirnar hér neðst á síðunni.

10 km leiðin: Hlaupið er ræst í Víkurfjöru. Hlaupið er í átt að Reynisdröngum eftir sandinum u.þ.b. 600 m. Beygt er upp úr fjörunni upp við Reynisfjall og hlaupið meðfram fjallinu. Þá er komið inn á Víkurbraut sem er malbikuð gata. Hlaupið er eftir Víkurbraut þar til komið er að Bakkaskarði, þar er beygt til vinstri upp hlíðina. Leiðin liggur síðan eftir malarvegi upp á Reynisfjall. Þegar farið hefur verið yfir pípuhliðið á brún Reynisfjalls er beygt til vinstri inn á þröngan stíg sem liggur eftir allri fjallsbrúninni. Útsýnið yfir Vík og Reynisdranga er stórkostlegt á þessum kafla leiðarinnar. Drykkjarstöð verður fremst á fjallinu eftir u.þ.b. 4,5 km (við hús sem stendur þar) og síðan er hlaupið áfram eftir vesturbrún fjallsins. Þegar komið er niður Reynisfjall vestan megin er beygt til hægri og farið aftur upp fjallið eftir gömlum malarvegi yfir fjallið, þ.e í átt að Vík. Þaðan er síðan hlaupin sama leið aftur niður í þorpið. Markið er við íþróttamiðstöðina.

10 km leiðina má skoða nánar hér: https://tracedetrail.com/en/trace/trace/128844

21 km leiðin: Lengra hlaupið er á sömu braut og styttra hlaupið í byrjun en beygir af leið eftir u.þ.b. 7 km. Þá er hlaupið inn eftir Reynisfjalli í norður í stað þess að fara niður í þorpið eins og styttra hlaupið gerir. Þessi kafli er ýmist kindagötur eða melar og móar með engum stíg á köflum. Farið er niður af fjallinu við fjallsendann, en þar hefur verið komið fyrir keðju til að aðstoða hlaupara við að fara niður mesta brattann. Síðan er farið yfir þjóðveginn og hlaupið eftir gömlum vegi upp að Höttu. Þar er talsverð hækkun og hlaupið utan stíga síðasta kílómeterinn upp á topp á Höttu. Flestir telja þetta vera erfiðasta hluta leiðarinnar. Frá toppi Höttu er síðan mjög skemmtilegt niðurhlaup á göngustígum niður í Víkurþorp. Þar eru mismunandi brattir kaflar en flatir inn á milli. Hluti þessarar leiðar er þó nokkuð brött og getur reynst þreyttum fótum erfið. Hlaupið endar við íþróttamiðstöðina eins og styttra hlaupið. Undirlagið í hlaupinu er u.þ.b. 80% á stígum og slóðum, 18% utan stíga og 2% á malbiki. Þessi hlaupaleið er sem áður sagði viðurkennd af ITRA og gefur 1 punkt og ITRA stig. Hér er hlekkur inn á ITRA síðu hlaupsins. Hlaupið er einnig UTMB qualifying race og getur því stuðlað að þátttökurétti í UTMB hlaupaseríunni, sjá nánar á https://utmb.world/races/37362.myrdalshlaup.2023.

Leiðin verður vel merkt og brautarvarsla á leiðinni. Tvær drykkjarstöðvar verða í lengra hlaupinu (4,5km og 13km) og ein í styttra (4,5km).

Vakin er athygli á því að 21 km hlaupið er krefjandi og einungis fyrir þá hlaupara sem hafa farið í utanvegahlaup áður og teljast nokkuð vanir að hlaupa utanvega. Um tæknilega braut er að ræða og brött niðurhlaup á köflum.

21 km leiðina má skoða nánar hér: https://tracedetrail.com/en/trace/trace/120682

Mýrdalshlaup1a
Tímamörk

Tímamörk verða í 21 km hlaupinu nú eins og síðast. Eru þau sett með öryggi hlauparans og skipulag brautarvörslu í huga. Til að ná tímatakmörkum verða hlauparar að vera farnir frá drykkjarstöð nr. 2 (u.þ.b 13 km og 620 m uppsöfnuð hækkun frá ræsingu) eftir 2 klukkutíma og 30 mínútur frá ræsingu. Ef hlaupari nær ekki þeim tímatakmörkum telst hann hafa lokið keppni í hlaupinu og verður boðið far niður í Víkurþorp. Þessi regla á við um alla þátttakendur og er ekki hægt að semja við starfsmenn á staðnum um aðra kosti.

Flokkar

Keppt verður í opnum flokki karla og kvenna.

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í karla- og kvennaflokki. Einnig verða útdráttarverðlaun.

Nánari upplýsingar

Vinsamlegast hafið samband við aðstandendur hlaupsins á netfangið: myrdalshlaup@gmail.com.

Kort af hlaupaleið
Myrdalshlaupkort10kmleid
Kort af 10 km hlaupaleið
Myrdalshlaupkort21kmleid
Kort af 21 km hlaupaleið