Neshlaup TKS verður haldið laugardaginn 11. maí. Hlaupið verður ræst kl 11:00 við Sundlaug Seltjarnarness. Trimmklúbbur Seltjarnarness (TKS), heldur þennan árlega viðburð nú í 35. skipti.
- Myndasafn frá Neshlaupinu 2023
- Myndasafn frá Neshlaupinu 2022
- Vídeó af hlaupurum í Neshlaupinu 2022
- Myndasafn frá Neshlaupinu 2018
- Myndasafn frá Neshlaupinu 2017
Vegalengdir
Í boði eru þrjár vegalengdir:
- 3,25 km skemmtiskokk, án flokkaskiptingar en með tímatöku (flögur).
- 7,5 km hlaupaleið, einn Neshringur með tímatöku (flögur).
- 15 km hlaupaleið, tveir Neshringir með tímatöku (flögur) millitími gefinn.
Skráning
Forskráning fer fram hér á hlaup.is og lýkur föstudaginn 10. maí kl. 22:30. Eftir að forskráningu lýkur hækkar þátttökugjald og eru þátttakendur því hvattir til að forskrá sig tímanlega á hlaup.is. Skráning á staðnum og afhending á hlaupagögnum fer fram í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi á milli kl. 9 - 10:45 á hlaupdaginn.
Þátttökugjald
- 2.500 kr. fyrir fullorðna (f. 2007 og fyrr) miðað við forskráningu.
- 3.000 kr. fyrir fullorðna eftir að forskráningu líkur.
- Ókeypis fyrir börn og ungmenni (f. 2008 eða síðar, miðað er við grunnskólaaldur)
Hlaupaleið
Rásmarkið og endamarkið er við Sundlaug Seltjarnarness í öllum vegalengdum. Í lengri vegalengdunum er hlaupið eftir göngu/hjólastígnum hringinn um nesið. Frá Suðurströnd eftir Bakkagranda, út fyrir golfvöll í Suðurnesi, með Kotagranda að Snoppu, síðan Norðurströnd heim að endamarki við sundlaug. Í 3,25 km hlaupinu er hlaupið eftir Suðurströnd og beygt inn Lindarbraut og Norðurstönd til baka þar til beygt er í átt að sundlaug að nýju.
Sjá einnig kort af leiðinni hér neðst.
Flokkaskipting
Keppt er bæði í karla- og kvennaflokki í hverri vegalengd.
Annað
Hlaupið er fjölskylduvæn skemmtun þar sem allir geta fundið sér vegalengd við hæfi. Drykkjarstöð er á miðri leið fyrir 15 km. Þátttökuverðlaun og hressing að loknu hlaupi. Fjölmargir spennandi útdráttarvinningar.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda tölvupóst á trimmklubburinn@gmail.com