Öræfahlaupið er 23 km utanvegahlaup sem fer fram laugardaginn 27. júní og hefst kl 11:00.
Hlaupið er í stórbrotnu umhverfi í Skaftafelli sem er hluti af Vatnajökulsþjóðgarðinum. Hlaupið hefst við þjónustumiðstöðina í Skaftafelli en hlaupaleiðin liggur um Kristínartinda þar sem frábært útsýni er um fjalllendi Öræfanna og þaðan er hlaupið inn í Morsárdalinn áður en haldið er til baka að þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli.
Hlaupaleið
Hlaupið er 23 km með 1.000 m hækkun. Hægt er að sjá hlaupaleiðina neðst á þessari síðu eða á Strava.
Skráning og verð
Skráning fer fram á netskraning.is. Þátttökugjaldið er 13.900 kr. Skráningafrestur er til miðnættis 26. júní.

