Powerade vetrarhlaupin 2020-2021 nr. 2

Um hlaupið

  • Vegalengdir10 km
  • Dagsetning12. nóvember 2020

Powerade Vetrarhlaupið verður á sínum stað í vetur líkt og áður. Alls verða hlaupin sex og verða þau haldin annan fimmtudag í mánuði, frá október fram í mars. Hlaupin byrja klukkan 20:00 við Árbæjarlaugina.

Dagsetning hlaupanna 2020-2021:
8. október
12. nóvember
10. desember
14. janúar
11. febrúar
11. mars

Skráning og verð

Sala þátttökuseðla hefst hálftíma fyrir hlaup í anddyri laugarinnar. Þátttökuseðillinn kostar 500 kr. Þátttökuseðillinn er fylltur út skilmerkilega, hlaupið með hann og hann síðan afhentur tímavörðum þegar komið er í mark.  Enginn þátttökuseðill enginn tími.

Hægt er að komast hjá biðröð við kaup á þátttökuseðlum með því að kaupa marga í einu.  Hlaupahópar geta einnig keypt þátttökuseðla í magnkaupum.  Verið í sambandi við framkvæmdaaðila vegna þessa.

Rásnúmer

Í þeim tilgangi að auðvelda og flýta fyrir úrvinnslu úrslita í kjölfar komandi Powerade Vetrarhlaupa hefur þeim sem tekið hafa þátt hingað til verið úthlutað rásnúmeri (sjá lista).  Notið þetta númer í línuna „Kennitala/Rásnúmer" þegar þátttökuseðillinn er fylltur út.  Þeir sem ekki hafa fengið úthlutað rásnúmeri eða hafa rásnúmerið ekki handhægt þegar þátttökuseðillinn er fylltur út geta eftir sem áður notað kennitölu, sem kemur þá í stað rásnúmers.

Athugið að rangt eða illa útfylltur þátttökuseðill getur valdið villum í úrslitum og jafnvel komið í veg fyrir að réttur tími fáist skráður. Ef spurningar vakna verið í sambandi á vetrarhlaup@hotmail.com. Með fyrirfram þökk fyrir samvinnuna.

Rásnúmeralisti. Rásnúmerum var úthlutað í hækkandi röð eftir fjölda hlaupa þátttakenda.

Hlaupaleiðin

Vegalengdin er 10 km og fer hlaupið að mestu fram á göngustígum í Elliðaárdal. Kort af leiðinni er neðst í þessari lýsingu.

Hlaupið hefst við gervigrasvöll Fylkis. Hlaupið er í suðurátt eftir göngustíg sem liggur upp með Elliðaánum fyrir neðan skeiðvöll Fáks, beygt af yfir göngubrú við Heyvað, þaðan á  malbikuðum göngustíg í átt að Suðurfelli, fyrir neðan Hóla- og Fellakirkju og áfram niður Elliðaárdalinn framhjá Vatnsveitubrúnni, framhjá Árbæjarstíflu, undir Höfðabakkabrú, áfram niður dalinn, framhjá undirgöngum við Blesugróf og áfram á malarstíg, framhjá undirgöngum við Sprengisand og yfir Elliðaár á hitaveitustokk, beygt til hægri og hlaupið eftir Rafstöðvarvegi upp að Árbæjarstíflu, þaðan eftir ný malbikuðum stíg sem liggur fyrir neðan einbýlishúsabyggðina meðfram ánni beina leið í markið. Markið er við göngustíginn fyrir neðan gervigrasvöllinn. Allir keppendur frá flösku af Powerade þegar þeir koma í mark.

Þátttakendur þurfa að kynna sér leiðina vel fyrir hlaup enda verður engin brautarvarsla. Þátttakendur skulu sýna öðrum vegfarendum á hlaupaleiðinni tilhlýðilega virðingu og gæta fyllsta öryggis í myrkrinu.

Stigakeppni

Stigakeppni virkar þannig:

1. sæti gefur 10 stig
2. sæti gefur 9 stig
3. sæti gefur 8 stig
4. sæti gefur 7 stig
5. sæti gefur 6 stig
6. sæti gefur 5 stig
7. sæti gefur 4 stig
8. sæti gefur 3 stig
9. sæti gefur 2 stig
10. sæti gefur 1 stig

og samanlagður stigafjöldi í heildarúrslitum og aldursflokkum í öllum hlaupunum sex gildir.

Aldursflokkar

Í stigakeppninni eru aldursflokkarnir:

Konur
16-29
30-34
35-39
40-44
45-49
50-54
55 ára og eldri

Karlar
16-29
30-34
35-39
40-44
45-49
50-54
55-59
60 ára og eldri

Aldur keppenda eins og hann er í fyrsta hlaupinu ákvarðar aldursflokk fyrir öll 6 hlaupin. Þannig flytjast keppendur ekki milli aldursflokka eftir fyrsta hlaup vetrarins.

Stigakeppni skokkhópa

Stig keppenda í stigakeppni aldursflokka gilda einnig í stigakeppni skokkhópa. Því til viðbótar er veitt eitt stig fyrir hvern þátttakanda sem tekur þátt en nær ekki stigi í stigakeppni aldursflokka. Mikilvægt er að skráning í hlaupahóp sé rétt.

Stigakeppni para

Samanlagður tími pars ákvarðar sæti.  Stigagjöf er með sama hætti og í annarri stigakeppni.  Par verður að vera kærsutupar, par í staðfestri sambúð eða hjón.  Þau pör sem hyggjast taka þátt þurfa að skrá sig sérstaklega til framkvæmdaaðila.

Úrslit og verðlaun

Öll úrslit ásamt stöðu í stigakeppninni verða birt á www.hlaup.is eins fljótt og kostur er.

Verðlaunaafhending fer fram í mars að loknum öllum hlaupunum. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í stigakeppni heildarúrslit, stigakeppni aldursflokka og stigakeppni para, ásamt farandbikar fyrir fyrsta sæti í stigakeppni hlaupahópa. Einnig verða vegleg útdráttarverðlaun þar sem keppendur fá einn miða í pottinn fyrir hverja þátttöku.

***VIÐVÖRUN***

Þar sem hlaupið er seint að kvöldi er mælt með því að keppendur klæðist skærlitum fatnaði og verði sér jafnvel út um endurskinsvesti. Þegar líður á veturinn getur færið verið varasamt með snjó og hálku, ekki er gert ráð fyrir að hætt verði við hlaup eða það fært til af þessari ástæðu.  Keppendur taka þátt á eigin ábyrgð og framkvæmdaaðilar geta á engan hátt verið ábyrgir fyrir skaða sem keppendur hugsanlega verða fyrir eða valda öðrum meðan á þátttöku stendur.

Framkvæmdaraðilar eru:

Dagur Egonsson og Pétur Helgason.

Ef þið hafið einhverjar spurningar verið í sambandi (vetrarhlaup@hotmail.com).