The Puffin Run fer fram í Vestmannaeyjum þann 2. maí 2026 kl. 12:15.
Vegalengdir og boðhlaup
- Einstaklingshlaup: 20 km
- Tveggja manna sveit karla, kvenna eða blönduð: 2x10 km
- Fjögurra manna sveit karla, kvenna eða blönduð: 4x5 km
Í boði verður einstaklingskeppni í karla- og kvennaflokki sem og boðhlaup 2 og 4 manna í karla-, kvenna-, og blönduðum flokki. Hlauparar geta þá hlaupið 2*10 km eða 4*5 km.
Skráning og gagnaafhending
Forskráning er á netskraning.is og takmarkast fjöldi þátttakenda við 1.000 skráningar, 80 tvímenningslið og 20 boðhlaupssveitir.
Gögn verða afhent í Sportvörum Dalvegi 32a í Kópavogi, föstudaginn 24. apríl
Rásmarkið og startið í hlaupinu
Rásmark og endamark verður á Nausthamarsbryggju.
Þeir sem eru að fara seinni parta hlaupsins fá akstur frá Nausthamarsbryggju að skiptistöð. Óskað er eftir að þeir sem eru búnir að hlaupa fyrri hluta, taki á móti liðsfélaganum við markið þar sem ljósmyndarar verða á staðnum.
Verðlaun
Veitt eru peningaverðlaun til fyrstu þriggja karla og kvenna.
- Fyrsta sæti 220.000 kr.
- Annað sæti 165.000 kr.
- Þriðja sæti 110.000 kr.
Einnig eru verðlaun fyrir fyrsta sæti í tvímennings og fjögurra manna sveit karla, kvenna og blandaðri.
Hlaupaleið
Hlaupið er frá Nausthamarsbryggju framhjá FES og út Ægisgötu og Tangagötu. Inn á Skipasand og þaðan niður á Friðarhafnarbryggju. Norður fyrir N1, framhjá Spröngunni, upp Hlíðarveg og inn í Herjólfsdal. Hlaupið er hringinn í kringum Tjörnina. Þaðan er hlaupið framhjá Kaplagjótu, Mormónapolli og til suðurs með Hamrinum. Upp á Breiðabakka þaðan sem farið er niður í fjöruna Klauf og Höfðavík. Hlaupið er með brún Stórhöfða að norðan að lundaskoðunarhúsi. Hlaupið meðfram og í lundabyggðinni vestur og allan hringinn um Stórhöfða og þaðan yfir eiðið milli Klaufar og Brimurðar. Beygt inn Kinn og hlaupið meðfram Sæfelli út veginn og síðan beygt til austurs og farið meðfram flugbraut og út fyrir flugbrautarenda að austan. Þaðan niður með brúninni og með henni þar til að komið er inn á slóða. Hlaupið á Slóðanum að Eldfelli og farið framhjá Páskahelli. Farið meðfram Eldfelli að austan að krossinum inn við Eldfellsgýg. Síðan er hlaupið á malarveginum á Nýja hrauninu til norðurs niður að gatnamótum, þá er beygt til austurs og hlaupið stutta vegalengd á veginum. Niður á útsýnispall hjá Viðlagafjöru, þar sem útsýni er að Bjarnarey, Elliðaey og Eyjafjallajökli. Frá honum er farið áfram til norðurs og farið grýtta leið meðfram Gjábakkafjöru sem endar upp á útsýnispalli móts við Klettshelli. Hlaupið er þaðan niður í Skansfjöru framhjá Stafkirkjunni og Landlyst þar sem hringnum er lokað.
Vestmannaeyjar eru stærsta lundabyggð í heimi og er tímasetning hlaupsins í ár miðuð við að lundinn sé sestur upp í björgin. Hluti leiðarinnar er meðfram lundabyggð.
Annað
Þátttakendur komast í sturtu í Sundlaug Vestmannaeyja eftir hlaup.
Nánari upplýsingar
Á vef hlaupsins thepuffinrun.com
