Um hlaupið

  • Vegalengdir5 km
  • Dagsetning28. maí 2026

Saffran hlaupið verður haldið í fyrsta sinn fimmtudaginnn þann 28. maí næstkomandi og hefst hlaupið kl. 19. 

Í samstarfi við Ultraform er boðið upp á FRÍ-vottað 5 kílómetra partýhlaup á marflatri braut í Gufunesi með aðeins 23m hækkun.

Sameiginleg upphitun hefst kl. 18:30 í Ultraform (Gylfaflöt 10) og er skokkað rólega þaðan að rásmarki í Gufunesi (1,6 km). Í Ultraform verður hægt að nota klósett, engin klósett verða við startið.

Hlaupið byrjar 19:00. Hægt er að mæta beint þangað og sleppa upphituninni. Eftir hlaupið getur fólk tekið niðurskokkið aftur að Ultraformi þar sem verða léttar veitingar og stuð og stemmning. ATHUGIÐ að einungis 400 miðar eru í boði.

Skráning á netskraning.is.

Sjá kort af hlaupaleið hér fyrir neðan.

Nánari upplýsingar

Sigurjón Ernir Sturluson, ultraform@ultraform.is