Þátttökugjald

  • 5 km3.000 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir5 km
  • Dagsetning10. desember 2024

Samstöðuhlaupið verður haldið í Laugardalnum þriðjudaginn 10. desember kl. 17:30.

Um hlaupið

Um er að ræða eitt af fjórum hlaupum sem verða haldin til styrktar gegn kynbundnu ofbeldi en þessi fjögurra hlaupa sería er verkefni sem hjálparsamtökin Vinir Kenía og Tansaníu og fjöldi annarra samtaka standa að og skipuleggja.

  • Fyrsta hlaupið verður í Nairobi í Kenía þann 26. nóvember
  • Annað hlaupið verður í Kisumu í Kenía þann 28. nóvember
  • Þriðja hlaupið verður í Mwanza í Tansaníu þann 30.nóvember
  • Fjórða hlaupið verður í Laugardalnum þann 10. desember

Ofangreind hlaup í Kenía og Tanzaníu verða hlaupin með samstarfsaðilum/samstarfssamtökum og almenningi þar og svo á Íslandi 10. desember.

Vert er að taka fram að Tegla Lourupe, einn þekktasti langhlaupari Kenía, kemur og tekur þátt í öllum hlaupunum. Hún hefur tvisvar unnið maraþonhlaupið í New York, einnig í Hollandi og hefur slegið nokkur heimsmet í langhlaupum. Þá er hún friðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna.

Þetta verður vettvangur fyrir fólk til að sameinast um að vekja athygli á mikilvægu málefni og hlaupa saman. Hlaupið verður í anda samstöðu og samkenndar og fjármunum safnað til þess að styðja við hin ýmsu samtök sem fórnarlömb kynbundins ofbeldis í Kenía, Tansaníu og Íslandi leita til. Samtökin sem stutt er við á Íslandi eru Bjarmahlíð, Bjarkarhlíð, Stígamót og Kvennaathvarfið á Íslandi.

Dagana 25. nóvember til 10. desember fer árlega fram sextán daga vitundarvakning á heimsvísu undir heitinu Alþjóðlegir baráttudagar gegn kynbundnu ofbeldi. Dagana 2. október 2024 til 5. janúar 2025 fer einnig fram Heimsfriðarganga með friði og andofbeldi í þriðja skiptið.

Múltíkúltí-ferðir, sem styrkja viðburðinn, hafa tekið að sér að skipuleggja ferð til Kenía og Tanzaníu í öll hlaupin 23. nóvember til 6. desember, sjá nánari upplýsingar á vefsíðu Múlitkúltí ferða.

Vegalengd

Öll fjögur hlaupin eru 5 km án tímatöku enda fyrst og fremst um styrktar- og samstöðuhlaup að ræða. Sjá kort af leiðinni hér neðst á þessari síðu.

Hlaupin henta jafnt byrjendum sem lengra komnum, enda er gert ráð fyrir að hægt sé að hlaupa, skokka eða ganga vegalengdina. Þátttakendur í ferðinni með Múltikúltí geta valið að taka þátt í einu, tveimur eða öllum hlaupunum. Hitastigið á áfangastöðunum í Afríku er um 20-25 gráður á þessum tíma, en borgirnar sem hlaupin fara fram í eru allar í töluverðri hæð.

Skráning

Skráningargjald í hlaupið er 3.000 kr og rennur allur sá peningur til Stígamóta, Kvennaathvarfsins, Bjarkarhlíð og Bjarmahlíð.

Skráning í hlaupið fer fram hér á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu.

Af hverju að taka þátt?

Kynbundið ofbeldi hefur áhrif á milljónir kvenna, karla og barna um allan heim, jafnt í Afríku sem á Íslandi. Með því að taka þátt í hlaupunum erum við ekki aðeins að leggja okkar af mörkum til að vekja athygli á málefninu, heldur hjálpum við líka beint með því að safna fjármunum til þeirra sem þurfa á stuðningi að halda. Hver króna sem safnast fer í lífsnauðsynlegar aðgerðir á vettvangi, svo sem fræðslu, forvarnir og aðstoð við þolendur.

Þú getur stutt málefnið

Ef þú getur ekki tekið þátt í ferðinni, en vilt styrkja málefnið, getur þú lagt inn frjáls framlög (reikningur 0301-26-042460, kt. 541004-2460) sem renna beint til samtaka í Kenía, Tansaníu og Íslandi sem vinna að málstaðnum. Fyrirtæki og félög geta sótt um að verða opinberir styrktaraðilar hlaupsins og stutt þetta góða málefni. Þú getur líka hjálpað með því að deila upplýsingum um hlaupið og hvatt aðra til þátttöku. Með þátttöku í Samstöðuhlaupi gegn kynbundnu ofbeldi ertu að taka virkan þátt í að breyta heiminum til hins betra. Taktu skrefið, hvort sem það er að hlaupa með okkur, styrkja málefnið eða vekja athygli á því í þínu nærumhverfi.

Aðrar upplýsingar