Um hlaupið

  • Vegalengdir10 km
  • Dagsetning1. júlí 2023
Sjá úrslit

Skúli Craft Bar heldur 3ja árið í röð 10 km keppnishlaup 1. júlí kl. 11:00.

Hlaupaleið og tímataka

Hlaupaleiðin er 10 km skemmtileg leið, sjá kort neðst á þessari síðu. Rásmark og endastöð verður við Kirkjustræti og er mæting hjá Skúla Craft Bar, Aðalstræti 9.

Hlaupið er ræst af stað klukkan 11:00.

Tímataka verður með flögum og verður verðlaunaafhending fyrir efstu 3 sætin í karla og kvennaflokki. Skráðir keppendur fá frían bjór eftir hlaupið ásamt því að fá fallegt bjórglas.

Skráning og afhending gagna

Skráning í hlaupið er á netskraning.is og verður skráning opin til kl. 24 föstudaginn 30. júní.

Skráningargjald er 4.500 kr út maí en hækkar í 5.000 kr 1. júní og er 20 ára aldurstakmark í hlaupið.

Afhending gagna er á Skúla Craft Bar föstudaginn 30. júni frá 12-17 og svo laugardaginn 1. júli frá klukkan 10.

Nánari upplýsingar

Björn Árnason, Skúli Craft Bar, netfang: bjorn@skulicraftbar.is