Þátttökugjald

  • 10 km0 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir10 km
  • Dagsetning17. júlí 2021
Sjá úrslit

Skúli Craft Bar ætlar að standa fyrir hressandi skemmtihlaupi, laugardaginn 17. júlí kl. 11.00.

Að lokum hlaupsins verður boðið upp á frían mat og einn bjór fyrir hlauparana og gildir hlaupanúmerið sem greiðsla fyrir það. Maturinn er frá Fiskmarkaðinum og bjórinn frá Skúla Craft Bar.

Hlaupið er í samstarfi við Sumarborgina.

Hlaupaleið og tímataka

Hlaupaleiðin er 10 km skemmtileg leið (sjá kort fljótlega). Rásmark og endastöð verður í Fógetagarðinum.

Tímataka verður með flögum.

Skráning og afhending gagna

Skráning í hlaupið er hér á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu og verður skráning opin til kl. 24 fimmtudaginn 15. júlí.

Ókeypis verður í hlaupið en takmarkaður fjöldi sem kemst að, 120 hlauparar. Aldurstakmark í hlaupið er 20 ára.

Afhending gagna er á Skúla Craft Bar frá kl. 16.00 föstudaginn 16. júlí til kl. 10.30 laugardaginn 17. júlí.

Nánari upplýsingar

Björn Árnason, Skúli Craft Bar, netfang: bjorn@skulicraftbar.is