Stúdíó Sport hlaupið er nýtt hlaup sem hlaupahópurinn Frískir Flóamenn halda í samstarfi við verslunina Stúdíó Sport á Selfossi þann 1. maí. Frískir Flóamenn hafa áður haldið Jötunnhlaupið (2017-2019) og þar áður Hlaupið eins og vindurinn/Intersport/Byko hlaupið.
Hlaup fyrir alla, unga sem aldna, byrjendur sem lengra komna!
Vegalengdir
Keppt er í tveimur vegalengdum, 5 km og 10 km. Brautin er flöt og því vænleg til góðra afreka og hafa margir hlauparar náð sínum bestu tímum í hlaupum á Selfossi.
Vegna takmarkandi sóttvarnarreglna verður framkvæmd hlaupsins með öðru og breyttu sniði en upphaflega var áformað og því miður verður ekki fært að halda krakkahlaupið þar sem fyrirséð að því fylgi meiri hópamyndun
Mæting og endamark er við verslunina Stúdíó Sport, Austurvegi 11 en fyrir ræsingu verður gengið saman að rásmarki sem er í Sigtúnsgarði/nýjum miðbæ Selfoss. Hlaupið er til suðurs, út á Suðurhóla þar sem leiðir skiljast á 5 og 10 km leiðum. 5 km beygja til hægri og hlaupa um undirgöng inn í Hagaland og meðfram Ölfusá, undir Ölfusárbrú og að endamarki við versluninni Stúdíó Sport. 10 km beygja aftur á móti til vinstri á Suðurhólum og hlaupa til austurs í áleiðis að Austurhólum og til baka og síðan sömu leið og 5km leiðin í mark.
Kort af hlaupaleið
Hægt er að sjá kort af hlaupaleið neðst á þessari síðu og einnig er kortið sem PDF skjal.
Allar vegalengdir eru löglega mældar og mun framkvæmd hlaupsins taka mið af reglum FRÍ um framkvæmd götuhlaupa svo árangur fæst skráður í afrekaskrá FRÍ.
Tímasetningar
Keppni í 5 km er ræst kl. 10 og keppni í 10 km hlaupi er ræst kl. 11.
Skráning
Skráning í hlaupið fer fram á hlaup.is, sjá hér efst á þessari síðu. Opið er fyrir skráningu til kl. 21:00 fimmtudagskvöldið 29. apríl 2021. Einnig verður hægt að skrá sig í versluninni Stúdíó Sport að morgni keppnisdags en þá hækka öll verð.
Hámarksfjöldi í hlaupið er 200 manns.
Afhending skráningargagna fer fram föstudaginn 30. apríl og að morgni laugardagsins 1. maí í Versluninni Stúdíó Sport.
Verð
- Yngri 0-15 ára: 1.500,- báðar vegalengdir, hækkar í 2.000 á hlaupadag
- Eldri 16 ára+: 3.000,- báðar vegalengdir, hækkar í 4.000 á hlaupadag
Verðlaun
Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í báðum vegalengdum. Auk þess verður fjöldi útdráttarverðlauna frá ýmsum fyrirtækjum á svæðinu, t.d. Kaffi Krús, Vor veitingum, Versluninni Motivo, Hótel Selfoss, Riverside Spa ofl.
Tímataka og úrslit
Rafræn tímataka verður í hlaupinu. Keppendur fá afhenta flögu sem þeir hlaupa með. Engin flaga - enginn tími!
Úrslit verða birt strax að loknu hlaupi og síðar á hlaup.is og í afrekaskrá FRÍ.
Nánari upplýsingar
Upplýsingar um allt sem viðkemur hlaupinu veitir Aðalbjörg Skúladóttir á netfangið abbaskul4@gmail.com eða í síma 820-6882.