Þátttökugjald

  • Huppu-krakkahlaup - 500m1.000 kr
  • 5 km - 15 ára og yngri1.500 kr
  • 5 km - 16 ára og eldri3.000 kr
  • 10 km - 15 ára og yngri1.500 kr
  • 10 km - 16 ára og eldri3.000 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir5 km, 10 km
  • Dagsetning1. maí 2022
Sjá úrslit

Stúdíó Sport hlaupið er hlaup sem hlaupahópurinn Frískir Flóamenn halda í samstarfi við verslunina Stúdíó Sport á Selfossi þann 1. maí. Frískir Flóamenn hafa áður haldið Jötunnhlaupið (2017-2019) og þar áður Hlaupið eins og vindurinn/Intersport/Byko hlaupið.

Hlaup fyrir alla, unga sem aldna, byrjendur sem lengra komna!

Vegalengdir

Keppt er í tveimur vegalengdum, 5 km og 10 km. Brautin er flöt og því vænleg til góðra afreka og hafa margir hlauparar náð sínum bestu tímum í hlaupum á Selfossi.

Mæting og endamark er við verslunina Stúdíó Sport, Austurvegi 11 en fyrir ræsingu verður gengið saman í gegnum nýja miðbæ Selfoss, að rásmarki.  Hlaupið er til suðurs, út á Suðurhóla þar sem leiðir skiljast á 5 og 10 km leiðum.  5 km beygja til hægri og hlaupa um undirgöng inn í Hagaland og meðfram Ölfusá, undir Ölfusárbrú og að endamarki við versluninni Stúdíó Sport. 10 km beygja aftur á móti til vinstri á Suðurhólum og hlaupa til austurs í áleiðis að Austurhólum og til baka og síðan sömu leið og 5 km leiðin í mark.

Huppu-krakkahlaupið fer fram, samhliða Stúdíó Sport hlaupinu á Selfossi.  Um er að ræða 500m hlaup/skemmtiskokk fyrir hressa og káta krakka, 12 ára og yngri.  Allir mega hlaupa með þeim yngri án þess að vera skráðir.  Ræsing í hlaupið er kl. 12 við verslunina Stúdíó Sport og allir skráðir þátttakendur fá þátttökuverðlaun.

Kort af hlaupaleið

Hægt er að sjá kort af hlaupaleið neðst á þessari síðu og einnig er kortið sem PDF skjal.

Allar vegalengdir eru löglega mældar og mun framkvæmd hlaupsins taka mið af reglum FRÍ um framkvæmd götuhlaupa svo árangur fæst skráður í afrekaskrá FRÍ.

10 km hlauparar leggja af stað í Stúdíó Sport hlaupinu 2021
10 km hlauparar leggja af stað í Stúdíó Sport hlaupinu 2021
Tímasetningar

Hlaupið verður ræst kl. 10.

Skráning og verð

Skráning í hlaupið fer fram á hlaup.is, sjá hér efst á þessari síðu. Opið er fyrir forskráningu til kl. 21:00 föstudagskvöldið 29. apríl 2022.

  • Verð í forskráningu fyrir 5 km og 10 km hlaupin er kr. 1500 fyrir 15 ára og yngri en kr. 3000 fyrir 16 ára og eldri.
  • Verð í 500m Huppu-krakkahlaupið er kr. 1000 í forskráningu og er það fyrir 12 ára og yngri.

Einnig verður hægt að skrá sig í versluninni Stúdíó Sport að morgni keppnisdags en þá hækkar verðið í 5 km og 10 km hlaupunum í kr. 2000 fyrir 15 ára og yngri og í kr. 4000 fyrir 16 ára og eldri. Í Huppu-krakkahlaupið hækkar verðið í kr. 1200.

Afhending skráningargagna fer fram í Versluninni Stúdíó Sport.

Verðlaun

Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í báðum vegalengdum. Auk þess verður fjöldi útdráttarverðlauna frá ýmsum fyrirtækjum á svæðinu.

Tímataka og úrslit

Rafræn tímataka verður í hlaupinu. Keppendur fá afhenta flögu sem þeir hlaupa með. Engin flaga - enginn tími!

Úrslit verða birt strax að loknu hlaupi og síðar á hlaup.is og í afrekaskrá FRÍ.

Nánari upplýsingar

Upplýsingar um allt sem viðkemur hlaupinu veitir Aðalbjörg Skúladóttir á netfangið abbaskul4@gmail.com eða í síma 820-6882.

Einnig á FB síðu hlaupsins.