Vatnsmýrarhlaupið verður haldið í 29. sinn fimmtudaginn 8. ágúst næstkomandi. Hlaupið verður í Vatnsmýrinni og Skerjafirði eins og undanfarin fjögur ár. Upphaf og endir verður í nágrenni Háskóla Íslands og skráning verður á Háskólatorgi á hlaupadag. Veitt verða verðlaun fyrir sex aldursflokka og verður notast við flögutímatöku.
- Skoðaðu myndir frá hlaupinu 2023
- Skoðaðu myndir frá hlaupinu 2021
- Skoðaðu myndir frá hlaupinu 2019
- Skoðaðu myndir frá hlaupinu 2018
- Skoðaðu myndir frá hlaupinu 2017
- Skoðaðu myndir frá hlaupinu 2016
Tímasetning
Hefst kl. 20 við Háskóla Íslands.
Vegalengd
5 km með flögutímatöku. Hlaupaleiðin er löglega mæld af FRÍ.
Flokkaskipting
Bæði kyn
- 14 ára og yngri
- 15-19 ára
- 20-39 ára
- 40-49 ára
- 50-59 ára
- 60 ára og eldri
Skráning og verð
Skráning fer fram á hlaup.is til kl. 22:00 þann 7. ágúst en einnig er hægt að skrá sig milli kl. 17-19:30 á Háskólatorgi á hlaupdag. Skráningargjald er 2.500 kr. Hægt er að óska eftir þátttökumedalíu til miðnættis mánudaginn 5. ágúst, og er verðið þá 2.900 kr.
Athugið að ekki verður posi á staðnum.
Afhending númera verður milli kl. 17-19:45 á Háskólatorgi á hlaupdag.
Verðlaun
Þátttökumedalíur eru fyrir alla 14 ára og yngri og aðra sem óska eftir því. Vegleg útdráttarverðlaun eru og verðlaun fyrir efsta sæti í hverjum flokki.
Hlaupaleiðin
Hlaupið er í nágrenni Vatnsmýrar og Skerjafjarðar. Hlaupaleiðin er tiltölulega flöt. Sjá einnig meðfylgjandi kort af hlaupaleiðinni hér neðst í þessari lýsingu.
Annað
Brautarvarsla er á öllum helstu götuhornum, einnig verður hjólreiðamaður á undan fyrstu mönnum. Merkingar verða á kílómeters fresti.
Hið vinsæla ávaxtahlaðborð verður á sínum stað auk útdráttarverðlauna.
Nánari upplýsingar: Laufey Sigrún Haraldsdóttir, laufeys@gmail.com