Um hlaupið

  • Vegalengdir5 km
  • Dagsetning9. ágúst 2021
Sjá úrslit Myndasafn úr hlaupinu

Vatnsmýrarhlaupið verður haldið í 26. sinn mánudaginn 9. ágúst næstkomandi. Hlaupið verður í Vatnsmýrinni og Skerjafirði eins og undanfarin þrjú ár. Upphaf og endir verður í nágrenni Háskóla Íslands og skráning verður á Háskólatorgi á hlaupadag. Veitt verða verðlaun fyrir sex aldursflokka og verður notast við flögutímatöku.

Tímasetning

Hefst kl. 20 við Háskóla Íslands. 

Vegalengd

5 km með flögutímatöku. Hlaupaleiðin er löglega mæld af FRÍ. 

Flokkaskipting

Bæði kyn

  • 14 ára og yngri
  • 15-19 ára
  • 20-39 ára
  • 40-49 ára
  • 50-59 ára
  • 60 ára og eldri

Skráning og verð

Skráning fer fram á netskraning.is en einnig er hægt að skrá sig milli kl. 17-19.30 á Háskólatorgi á hlaupdag. Skráningargjald er 1.900 kr.

Afhending númera verður milli kl. 17-19.45 á Háskólatorgi á hlaupdag. 

Verðlaun

Þátttökumedalíur eru fyrir alla 14 ára og yngri og aðra sem óska eftir því. Vegleg útdráttarverðlaun eru og verðlaun fyrir efsta sæti í hverjum flokki.

Hlaupaleiðin

Hlaupið er í nágrenni Vatnsmýrar og Skerjafjarðar. Hlaupaleiðin er tiltölulega flöt. Sjá einnig meðfylgjandi kort af hlaupaleiðinni hér neðst í þessari lýsingu.

Annað

Brautarvarsla er á öllum helstu götuhornum, einnig verður hjólreiðamaður á undan fyrstu mönnum. Merkingar verða á kílómetrafresti.

Vegna sóttvarnarlaga

Ef þátttökufjöldi fer yfir 100 manns, þá verður ræst í 2 hollum, fyrra hollið byrjar kl. 20 og það síðara 10-15 mínútum síðar. Einnig er þá gert ráð fyrir að verðlaunaafhending fari fram í pörtum til að tryggja að ekki fleiri en 100 manns safnist saman.