Vecct Mílan fer fram kvöldið 28. apríl á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði. Hlaupið verður ræst í þremur hollum. Fyrst fer fram opinn flokkur, þar sem konur og karlar eru ræst saman. Í opnum flokki fá allir þátttakendur FRÍ vottaðan tíma í götumílu. Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjá í karla- og kvennaflokki, auk útdráttarverðlauna. Þátttakendur í opnum flokki eru hvattir til að fylgjast með elítuhlaupunum að keppni lokinni.
Að því loknu verða elítuflokkar kvenna og karla ræstir í sitthvoru lagi. Í þeim flokkum er keppt um Íslandsmeistaratitla í götumílu. Ekki er keppt um Íslandsmeistaratitla í aldursflokkum. Hlauparar eru hvattir til að sækja um þátttöku í elítuflokki með hliðsjón af tímalágmörkum í töflu hér að neðan. Veglegt verðlaunafé er í boði fyrir sigurvegara í elítuflokkum karla og kvenna. Öllum þátttakendum í elítuflokki er skylt að keppa í keppnisbúningi merktum sínu félagi.
Götumílan
Mílan er ein af aðeins átta viðurkenndum vegalengdum götuhlaupa og jafnframt sú stysta. Mílan á sér langa og rótgróna sögu í heimi hlaupa. Við hlökkum til að leyfa hlaupurum á Íslandi að spreyta sig á hinni sögufrægu götumílu í fyrsta skipti á Íslandi.
Brautin
Um er að ræða hraða og marflata braut sem skipulögð var í samráði við fagfólk innan hlaupaíþróttarinnar og fylgir hún öllum tilsettum skilyrðum World Athletics og Frjálsíþróttasambands Ísland. Hringurinn er 1119 metra langur þar sem 490 metra beinn kafli er hlaupinn tvisvar. Keppnin fer fram á Kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.
Verðlaunafé í elítuflokkum karla og kvenna
| 1.sæti | 2.sæti | 3.sæti |
|---|---|---|
| 250.000 ISK | 150.000 ISK | 100.000 ISK |
Tímalágmörk fyrir elítuflokk
Tímalágmörk eru einungis viðmið og hlauparar sem eiga tíma nálægt tilsettum viðmiðum eru hvattir til að sækja um í elítuflokk. Allir umsækjendur fá svar með fyrirvara og þeir sem ekki komast í elítuflokk fá sjálfkrafa sæti í opnum flokki. Við mat á umsóknum er tekið tillit til brautar- og götutíma í 5000m og 10.000m.
| Kyn | 800m | 1500m | 3000m | 5.000m | 10.000m | Hálfmaraþon |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Karlar | 02:04 | 04:17 | 09:15 | 15:50 | 33:40 | 01:14:40 |
| Konur | 02:26 | 05:05 | 11:05 | 19:10 | 40:00 | 01:30:00 |
