Vestmannaeyjahlaup verður haldið laugardaginn 7. september.
Vegalengdir
Boðið verður upp á 5 km og 10 km. Leiðin er mjög falleg og skemmtileg.
Hlaupaleiðin og tímasetningar
Rásmark verður við Íþróttamiðstöðina og hefjast bæði hlaupin kl. 13. Kort af hlaupaleiðinni er aftast í þessari lýsingu.
Þátttökugjöld og skráning
Skráning er á netskraning.is.
Keppnisnúmer og gögn eru afhent milli kl. 17-19 föstudagskvöldið 6. september í Íþróttamiðstöðinni. Þeir sem koma samdægurs geta sótt gögn á laugardeginum kl. 11:00 - 12:30
Eitt þátttökugjald 4.000 kr er í hlaupið, óháð vegalengd. Hlauparar fæddir 2007 og síðar (15 ára og yngri) fá frítt í hlaupið.
Verðlaun
Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjá í karla og kvennaflokki í hvorri vegalengd.
Verðlaun í 10 km:
- 1.sæti 100.000 kr
- 2.sæti 50.000 kr
- 3.sæti 25.000 kr
Verðlaun í 5 km:
- 1.sæti 50.000 kr
- 2.sæti 25.000 kr
- 3.sæti 15.000 kr
Einnig verða veitt útdráttarverðlaun.
Búningsaðstaða
Íþróttahúsið verður opið fyrir og eftir hlaup og hægt er að fara í sund þar og er það innifalið í gjaldinu.
Nánari upplýsingar
Þú getur líka fylgst með hlaupinu á Facebook og á vef hlaupsins, www.vestmannaeyjahlaup.is.
Fyrir þá sem koma ofan af landi þá er um að gera að bóka ferðina yfir tímanlega á: herjolfur.is
Allur ágóði af hlaupinu rennur til góðgerðarmála.
Upplýsingar veitir Sigmar Þröstur Óskarsson í síma 895-3339 eða Magnús 897-1110.