Um hlaupið

  • Vegalengdir6 km
  • Dagsetning25. nóvember 2020

Vetrarhlaup UFA hafa verið haldin allt frá stofnun Langhlauparadeildar UFA 2003. Um hlaupasyrpu er að ræða sem samanstendur af fimm hlaupum sem haldin eru á tímabilinu frá október til mars og er keppt í stigakeppni einstaklinga og liða. Keppendur eru ekki bundnir af því að taka þátt í öllum hlaupunum og eru hlaupin öllum opin.

Tímasetning og hlaupaleiðir

Hlaupin eru haldin síðasta miðvikudag í mánuði og hefjast kl. 17:30

Hlaupin verða eftirtalda daga:

  • 28. október
  • 25. nóvember
  • 27. janúar
  • 24. febrúar
  • 24. mars
Skráning og þátttökugjöld

Sala þátttökuseðla hefst hálftíma fyrir hlaup. Þátttökuseðillinn kostar 500 kr. Þátttökuseðillinn er fylltur út skilmerkilega, hlaupið með hann og hann síðan afhentur starfsmanni hlaupsins þegar komið er í mark. Engin tímataka er í hlaupinu heldur ræður röð þátttakanda stigagjöf.

Vegalengdir og hlaupaleiðir

Hlaupnar verða ólíkar leiðir, 6-9 km langar, frá mismunandi stöðum í bænum. Hlaupastaður og hlaupaleið verða kynntar á heimasíðu UFA og á Facebook síðu hlaupsins eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir hvert hlaup.

Stigakeppni einstaklinga

Keppt er í stigakeppni í karla- og kvennaflokki og í tveimur aldursflokkum; 39 ára og yngri og 40 ára og eldri. Fyrir fyrsta sæti í hverju hlaupi eru gefin tíu stig, níu stig fyrir annað sæti og þannig koll af kolli niður í níunda sæti sem gefur tvö stig, sæti þar fyrir aftan gefa síðan eitt stig. Ef tveir einstaklingar eru jafnir að stigum eftir fimmta hlaupið gildir sú regla að sá sem hefur oftar unnið hinn sigrar.

Stigakeppni liða

Hámark fimm einstaklingar geta skipað hvert lið. Hægt er að fá 1, 3 eða 5 stig í hverju hlaupi og fer það eftir mætingu liðsmanna. 5 stig fást ef 5 liðsmenn klára hvert hlaup fyrir sig, 3 stig fást ef 4 liðsmenn klára og 1 stig fæst ef 3 liðsmenn klára. Ef fleiri en eitt lið enda jöfn stiga eftir lokahlaupið í mars þá ræður hlutkesti úrslitum.

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu sæti í stigakeppni karla og kvenna og fyrsta sæti í liðakeppninni. Að loknu síðasta hlaupi í mars verða einnig dregin út útdráttarverðlaun og á þá hver og einn þátttakandi einn miða í pottinum fyrir hvert hlaup sem hann tekur þátt í.