Víðavangshlaup Fætur toga og Framfara nr. 2

Um hlaupið

  • Vegalengdir900 m, 6,3 km
  • Dagsetning8. október 2022

Fætur toga og Framfarir, hollvinafélag millivegalengda- og langhlaupara, kynna 19. víðavangshlauparöð sína á haustdögum 2022.

Hlaupin eru þrjú og með sama sniði og undanfarin ár, hefjast kl. 10:00 á laugardagsmorgnum í október.

Um tvær vegalengdir er að ræða, „stutt“ og „langt“ hlaup, og hefst styttra hlaupið á undan. Stutta hlaupið er yfirleitt um 1 km en það lengra 6-7 km. Vegalengdirnar eru settar upp með það fyrir augum að höfða til sem flestra, bæði millivegalengda- og langhlaupara og hlaupara á öllum aldri á öllum getustigum.

Keppnisgjald í hvert hlaup er einungis 500 kr og óbreytt frá árinu 2004.

Boðið er upp á skráningu á netinu og greiðslu með kreditkorti. Þannig er hægt að skrá sig í alla hlauparöðina í einu og áætla greiðslu út frá því, skráning er á slóðinni https://netskraning.is/framfarir

Eftirfarandi eru staðsetningar og dagsetningar víðavangshlaupa í Reykjavík haustið 2022:

  • 1. október á Frisbígolfvellinum í Fossvogi
  • 8. október við Borgarspítalann í Reykjavík
  • 15. október við tjaldstæðið í Laugardal (Víðavangshlaup Íslands, ekki hluti af Framfararöðinni) – skráning þar verður á https://netskraning.is/vidavangshlaup_islands/
  • 29. október við Ræktunarstöð Reykjavíkur í Fossvogi

Stigakeppni er í flokkum karla og kvenna, og drengja og stúlkna 16 ára og yngri. Þátttakendur mega og eru hvattir til að taka þátt í báðum hlaupum á sama degi. Bæði hlaup á gefnum degi gilda til stiga einstaklings í stigakeppninni.

Nánari upplýsingar veitir Burkni Helgason, burknih@gmail.com, s. 6600078
Lögmenn Lækjargötu fá sérstakar þakkir fyrir aðkomu sína að framkvæmd hlaupanna.

Hlaup nr. 2 - Laugardagur 8. október

Staðsetning: Borgarspítali, bílastæði eru við spítalann (sjá kort neðst á þessari síðu).

Hringurinn er 1,1 km að lengd, hæðóttur og á köflum mýrlendur, nánast alfarið á grasi. Hlaupinn er 1 hringur (1100m) í stutta hlaupinu en 6 (6,6 km) í því langa.