Víðavangshlaup Fætur toga og Framfara nr. 2

Um hlaupið

  • Vegalengdir1,1 km, 6,6 km
  • Dagsetning16. október 2021
Sjá úrslit

Fætur toga og Framfarir, hollvinafélag millivegalengda- og langhlaupara, kynna 17. víðavangshlauparöð sína á haustdögum 2021.

Hlaupin eru þrjú og með sama sniði og undanfarin ár, hefjast kl. 10:00 á laugardagsmorgnum í október.

Um tvær vegalengdir er að ræða, „stutt“ og „langt“ hlaup, og hefst styttra hlaupið á undan. Stutta hlaupið er yfirleitt um 1 km en það lengra 6-7 km. Vegalengdirnar eru settar upp með það fyrir augum að höfða til sem flestra, bæði millivegalengda- og langhlaupara og hlaupara á öllum aldri á öllum getustigum.

Keppnisgjald í hvert hlaup er einungis 500 kr og óbreytt frá árinu 2004.

Boðið er upp á skráningu á netinu og greiðslu með kreditkorti. Þannig er hægt að skrá sig í alla hlauparöðina í einu og áætla greiðslu út frá því, skráning er á slóðinni https://netskraning.is/framfarir

Eftirfarandi eru staðsetningar og dagsetningar víðavangshlaupa í Reykjavík haustið 2021:

  • 2. október við Kjarrhólma, Kópavogi
  • 9. október við tjaldstæðið í Laugardal (Víðavangshlaup Íslands, ekki hluti af Framfararöðinni)
  • 16. október við Gufunesbæ í Grafarvogi
  • 30. október við Borgarspítalann í Reykjavík

 

Stigakeppni er í flokkum karla og kvenna, og drengja og stúlkna 16 ára og yngri. Þátttakendur mega og eru hvattir til að taka þátt í báðum hlaupum á sama degi. Bæði hlaup á gefnum degi gilda til stiga einstaklings í stigakeppninni.

Nánari upplýsingar veitir Burkni Helgason, burknih@gmail.com, s. 6600078
Lögmenn Lækjargötu fá sérstakar þakkir fyrir aðkomu sína að framkvæmd hlaupanna. Hleðsla er í boði fyrir keppendur.

Hlaup nr. 2 laugardaginn 16. október

Staðsetning: Hringurinn er svæði Gufunesbæjar, fyrst og fremst frisbígolfvellinum. Undirlagið er aðallega gras. Mælt er með að hlaupa á gaddaskóm eða utanvegaskóm.

Hlaupinn er 1 hringur (1100 m) í stutta hlaupinu en 6 hringir (6,6 km) í því langa.

Næg bílastæði eru við Gufunesbæ.