Víðavangshlaup Fimbul.is og Framfara nr. 3

Um hlaupið

  • Vegalengdir1,2 km, 7,2 km
  • Dagsetning31. október 2020

Fimbul.is og Framfarir, hollvinafélag millivegalengda- og langhlaupara, kynna 16. víðavangshlauparöð sína á haustdögum 2020.

Hlaupin eru þrjú og með sama sniði og undanfarin ár, hefjast kl. 10:00 á laugardagsmorgnum í október.

Um tvær vegalengdir er að ræða, „stutt“ og „langt“ hlaup, og hefst styttra hlaupið á undan. Stutta hlaupið er yfirleitt um 1 km en það lengra 6-7 km. Vegalengdirnar eru settar upp með það fyrir augum að höfða til sem flestra, bæði millivegalengda- og langhlaupara og hlaupara á öllum aldri á öllum getustigum.

Keppnisgjald í hvert hlaup er einungis 500 kr og óbreytt frá árinu 2004.

Boðið er upp á skráningu á netinu og greiðslu með kreditkorti. Þannig er hægt að skrá sig í alla hlauparöðina í einu og áætla greiðslu út frá því, skráning er á slóðinni https://netskraning.is/framfarir

Eftirfarandi eru staðsetningar og dagsetningar víðavangshlaupa í Reykjavík haustið 2020:

  • 3. október við Kjarrhólma, Kópavogi
  • 10. október við tjaldstæðið í Laugardal (Víðavangshlaup Íslands, ekki hluti af Framfararöðinni)
  • 17. október við Gufunesbæ í Grafarvogi
  • 31. október við Borgarspítalann í Reykjavík

 

Stigakeppni er í flokkum karla og kvenna, og drengja og stúlkna 16 ára og yngri. Þáttakendur mega og eru hvattir til að taka þátt í báðum hlaupum á sama degi. Bæði hlaup á gefnum degi gilda til stiga einstaklings í stigakeppninni.

Nánari upplýsingar veitir Burkni Helgason, burknih@gmail.com, s. 6600078
Lögmenn Lækjargötu fá sérstakar þakkir fyrir aðkomu sína að framkvæmd hlaupanna.

Hlaup nr. 3 þann 31. október

Staðsetning: Borgarspítali

Hringurinn er 1 km að lengd, hæðóttur og á köflum mýrlendur. Mælt er með að hlaupa í gaddaskóm eða utanvegaskóm. Hlaupinn er 1 hringur (1200 m) í stutta hlaupinu en 6 (7,2 km) í því langa.

Bílastæði eru við spítalann.