Á Sumardaginn fyrsta, þann 24. apríl næstkomandi, fer Víðavangshlaup ÍR fram Víðavangshlaupið er eitt vinsælasta og fjölmennasta 5 km keppnishlaupið sem fram fer á Íslandi enda er hlaupið í hjarta Reykjavíkurborgar þar sem hlaupaleiðin liggur um miðbæ hennar. Hlaupið fór fyrst fram árið 1916 og hefur farið fram ætíð síðan og oftast á Sumardaginn fyrsta fyrir utan 2021 þegar hlaupið var í maí vegna Covid takmarkana.
Hið þekkta nafn viðburðarins gefur til kynna að hlaupið sé á víðavangi en svo er ekki lengur en Víðavangshlaup ÍR er eitt af fáum götuhlaupum landsins þar sem götum er lokað og hlauparar og áhorfendur fá tækifæri til að leggja þær óáreittir undir sig.
Flestir af hröðustu hlaupurum landsins mæta í Víðavangshlaup ÍR þar sem það hefur ávallt verið talinn mikill heiður að vera með þeim fyrstu í mark og hefur endaspretturinn að og yfir marklínuna oft verið gríðar spennandi! Ekki skemmir fyrir að undanfarin ár hefur hlaupið verið Íslandsmótið í 5 km götuhlaupi og því til mikils að vinna.
Samhliða Víðavangshlaupinu fer fram 2,7 km skemmtiskokk sem hentar vel byrjendum og fjölskyldunni saman, ungum sem öldnum og má segja að fátt eigi eins vel við og að fagna sumarbyrjun með þátttöku í hlaupinu.
Tímasetning
Hlaupið er ræst í Pósthússtrætinu Sumardaginn fyrsta, 24. apríl kl. 12:00. Skemmtiskokkið er ræst kl. 12:10 í Lækjargötunni fyrir framan MR. Þátttakendur og áhorfendur eru hvattir til þess að mæta tímanlega á keppnisstað og hafa hugfast að það getur tekið tíma að leggja bílum í miðbæ borgarinnar á þessum degi.
Skráning
Víðavangshlaup ÍR er jafnframt Íslandsmeistaramót í 5 km götuhlaupi og fer framkvæmd hlaupsins fram samkvæmt reglum Frjálsíþróttarsambands Íslands en í því felst að tímar keppenda eru viðurkenndir til skráningar í afrekaskrá. Nánari upplýsingar um hlaupið og skráning er á heimasíðu hlaupsins.
Verðlaunaafhending
Verðlaunaafhending fer fram við marksvæðið skömmu eftir að fyrstu þrjár konur og þrír karlar eru komin í mark, áætlað um kl. 12:20.