Um hlaupið

  • Vegalengdir1,5 km, 3 km, 6 km, 9 km
  • Dagsetning19. október 2024

Víðavangshlaup Íslands er meistaramót Íslands í víðavangshlaupum, og tilheyrir ekki Framfararöðinni sem slíkri. Það er þó öllum opið og hlauparar af öllum getustigum hvattir til að vera með.

Keppnisstaður og tími

Start og mark er á miðjum tjaldsvæði Reykjavíkurborgar í Laugardal og hlaupið í grasbrekkum og malarstígum þar í kring. Brautin er nokkuð hæðótt. Hér er ekki skipt í stutt og langt hlaup heldur hlaupa aldursflokkar mislangt, frá 1,5 km upp í 9 km þar sem hringurinn er 1,5 km að lengd, mestmegnis á grasi en að nokkru leyti á möl.

Hér er ekki skipt í stutt og langt hlaup heldur hlaupa aldursflokkar mislangt, frá 1,5 km upp í 9 km. Keppni hefst kl. 10:00 eins og Framfarahlaupin en skipt er í aldursflokka.

Bílastæði eru við Skautahöllina/Húsdýragarðinn.

Strava: https://www.strava.com/segments/35362094

Skráningar

Skráning keppenda fer fram á https://netskraning.is/vidavangshlaup_islands/.

Keppnisflokkar

Keppnisflokkar miðast við fæðingarár. Keppnisflokkar, vegalengdir og rástímar eru eftirfarandi:

  • Piltar og stúlkur 12 ára og yngri - 1,5 km - 10:00
  • Piltar og stúlkur 13 -14 ára - 1,5 km - 10:15
  • Piltar og stúlkur 15 - 17 ára - 3 km - 10:30
  • Piltar og stúlkur 18 – 19 ára - 6 km - 11:00
  • Karlar og konur 20 ára og eldri - 9 km - 11:00

 

Hlaupstjórn og framkvæmd

Burkni Helgason, burknih@gmail.com, 660-0078.