VORmaraþon Félags maraþonhlaupara 2025 verður ræst á Rafstöðvarveginum í Elliðaárdalnum skammt frá gömlu rafstöðinni laugardaginn 26. apríl og hefst keppni í heilu maraþoni klukkan 09:00 en hálfu maraþoni 11:00. Mætið tímanlega.
Félag maraþonhlaupara hefur í yfir 20 ár haldið vor- og haustmaraþon og hafa þessi hlaup fyrir löngu skipað sér fastan sess og njóta sívaxandi vinsælda. Reynt hefur verið að skapa hlýja og afslappaða stemningu í kringum hlaupin. Leiðin liggur í fallegu umhverfi eftir helstu stígum borgarinnar eins fjarri allri bílaumferð og frekast er unnt. Boðið er upp á tvær vegalengdir heilt og hálft maraþon.
Vegalengd
Maraþon og hálft maraþon.
Leiðin
Hlaupið hefst á Rafstöðvarveginum í Elliðaárdalnum skammt frá gömlu rafstöðinni, farið er eftir nýja stígnum þvert yfir dalinn, undir Reykjanesbrautina og inn í Fossvogsdalinn, yfir göngubrúna yfir Kringlumýrarbrautina og beygt til hægri upp hjá Háskólanum í Reykjavík, hlaupið meðfram Öskjuhlíðinni upp að Hótel Natura og meðfram Nautólsveginum aftur niður að Nauthólsvík og svo áfram eftir stígnum vestur á Ægisíðu, þar sem snúið er við og farin sama leið til baka. Maraþonhlauparar fara þessa leið tvisvar.
Drykkjarstöðvar
Drykkjarstöðvar eru við HR, snúninginn við Ægisíðu og í markinu, eða með um 5 km millibili.
Tímataka
Tímataka fer fram með flögum.
Skráning/Registration
Hlaupagögn eru afhent við rásmarkið. Athugið að mæta tímanlega til að forðast örtröð. Einnig má nálgast gögnin í verslun Sport24 í Miðhrauni 2 í Garðabæ vikuna fyrir hlaup.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir: peturhh(hja)gmail.com.
Vefsíða hlaupsins: https://marathonhlaup.is
Facebooksíða: www.facebook.com/springautumnmarathon