Ýmsum skilyrðum þarf að vera fullnægt
Við höfðum samband við Sigurð P. Sigmundsson, hlaupaþjálfara og báðum hann að skýra málið. "Í frjálsíþróttum gilda aðrar reglur en í sundi þar sem oft hafa verið sett Íslandsmet í 800 m skriði innan 1.500 m. Millitímar í götuhlaupum hafa því aldrei farið inn á afrekaskrá. Til skamms tíma var það ekki hægt vegna reglna um tímatöku og væntanlega er RM eina hlaupið á Íslandi sem hefur boðið upp á tímatöku (mottur) í miðju hlaupi," útskýrir Siggi P.
Spurður um hlaupatíma í þríþraut stendur ekki á svörunum. "Þríþraut er keppnisgrein sem samanstendur af þremur greinum. Ekkert sérstakt ræs er í götuhlaupshlutanum sem er skilyrði til að um sjálfstætt hlaup/keppni sé að ræða. Eins eru gerðar kröfur um að götuhlaup séu sérstaklega auglýst sem keppnisgrein (ekki hluti af annarri grein) og um framkvæmdina gilda ákveðnar reglur til að árangur teljist löglegur og þar með tækur á afreksskrá."