Akrafjall Ultra og Hleðsluhlaupið eru Utanvegahlaup og Götuhlaup ársins 2024

uppfært 11. febrúar 2025

Verðlaunaafhending fyrir hlaup ársins 2024 fór fram í dag, sunnudaginn 9. febrúar.

Niðurstaða í einkunnagjöf hlaupara fyrir hlaup ársins 2024 er sú að Hleðsluhlaupið var valið Götuhlaup ársins 2024 og Akrafjall Ultra var valið Utanvegahlaup ársins 2024.

Í flokki götuhlaupa hafnaði Hlaupasería 66°N og Hlaupahóps FH í öðru sæti og Brúarhlaupið á Selfossi í þriðja sæti. Í flokki utanvegahlaupa hafnaði Hólmsheiðarhlaup Ultraform og Fram í öðru sæti og Puffin Run í þriðja sæti. Við birtum núna efstu þrjú hlaupin í hvorum flokki, en hægt er að skoða allan listann með sundurliðun á einstaka þáttum undir "Einkunnir hlaupa" á hlaup.is.

Við einkunnagjöf á hlaupum ársins gefa hlauparar tvennslags einkunnir. Annars vegar einkunnir fyrir hina ýmsu þætti hlaupsins og með því að reikna saman þessa þætti fæst "Útreiknuð einkunn". Hlauparar gefa svo eina heildareinkunn "Gefin einkunn" sem byggir á hans mati fyrir hlaupinu í heild sinni. Til að fá út lokaniðurstöðu um hlaup ársins eru þessar tvær einkunnir sameinaðar og fengin út ein heildareinkunn sem ræður endanlegri röð hlaupanna í valinu um hlaup ársins 2024. Til að eiga möguleika á að komast á þennan lista í ár eins og áður þarf hlaupið að fá einkunnagjöf frá að minnsta kosti 10 hlaupurum.

Götuhlaup ársins 2024
RöðHlaupEinkunn
1Hleðsluhlaupið4,78
2Hlaupasería 66°N og Hlaupahóps FH4,74
3Brúarhlaupið á Selfossi4,56

Götuhlaup Ársins 2024 2025 02 09 13.40.19
Fulltrúar Götuhlaupa ársins 2024. Frá vinstri Brúarhlaupið, Hlaupasería 66°N og FH, Hleðsluhlaupið

Utanvegahlaup ársins 2024
RöðHlaupEinkunn
1Akrafjall Ultra4,88
2Hólmsheiðarhlaup Ultraform og Fram4,82
3Puffin Run4,77

Utanvegahlaup Ársins 2024 2025 02 09 13.42.59
Fulltrúar Utanvegahlaupa ársins 2024. Frá vinstri Puffin Run, Hólmsheiðarhlaup Ultraform og Fram, Akrafjall Ultra

Hlaup.is þakkar stuðningsaðilum sem gáfu verðlaun, Íslandsbanka, Fætur toga, Útilíf og Unbroken

Öll Logo Hlaupari Ársins 2024 Póstlisti600