Volcano Trail Run - Þórsgatan - Frábært utanvegahlaup fyrir alla í stórkostlegu umhverfi

uppfært 01. september 2026

Þórsgata Volcano Trail Run, eða Þórsgötuhlaupið eins og margir þekkja það, verður haldið í þrettánda sinn laugardaginn 5. september.

Tvær hlaupaleiðir verða í boði, 4,5 km og 12 km.

Þórsgötuhlaupið er orðið árviss viðburður hjá mörgum hlaupurum enda liggja leiðirnar um fjölbreytta stíga í stórbrotnu landslagi Þórsmerkur. Hér ættu bæði reyndir utanvegahlauparar og þeir sem vilja prófa sig áfram í styttra fjallahlaupi að finna eitthvað við sitt hæfi.

Boðið verður upp á rútuferðir í Þórsmörk sem hægt er að bóka á vefsíðu hlaupsins. Einnig er tilvalið að lengja dvölina og gista í Húsadal.

Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í karla- og kvennaflokki auk þess sem útdráttarverðlaun verða afhent á staðnum.

Við hvetjum hlaupara til að kynna sér Þórsgata Volcano Trail Run og skrá sig til leiks í þessa einstöku hlaupaveislu í hjarta Þórsmerkur. Skráning fer fram hér á Hlaup.is.

Volcanotrail 2