Vegna árekstrar við æfingabúðir úrvalshóps FRÍ verður lokahlaupinu í Víðavangshlauparöð Framfara og New Balance frestað um eina viku.
Það fer því fram laugardaginn 20. nóvember en ekki 13. nóvember eins og áður hafði verið gert ráð fyrir. Hlaup nr. 2 fer fram nk. laugardag fyrir neðan Borgarspítalann og er reiknað með spennandi keppni og enn betri þátttöku en í fyrsta hlaupinu.