Breyting á dagsetningu í lokahlaupi Víðavangshlaupi Framfara og New Balance

birt 19. október 2004

Vegna árekstrar við æfingabúðir úrvalshóps FRÍ verður lokahlaupinu í Víðavangshlauparöð Framfara og New Balance frestað um eina viku.

Það fer því fram laugardaginn 20. nóvember en ekki 13. nóvember eins og áður hafði verið gert ráð fyrir.  Hlaup nr. 2 fer fram nk. laugardag fyrir neðan Borgarspítalann og er reiknað með spennandi keppni og enn betri þátttöku en í fyrsta hlaupinu.