Hlaup.is fagnar í dag 28 ára afmæli sínu

uppfært 13. ágúst 2024

Hlaup.is fagnar í dag, þann 13. ágúst, 28 ára afmæli sínu. Frá 1996 hefur hlaup.is haft það að markmiði að þjónusta íslenska hlaupasamfélagið. Við kappkostum að veita íslenska hlaupasamfélaginu eins mikla þjónustu og afþreyingu og mögulegt er á hverjum tíma, allt okkar starf er meira og minna unnið í frítím og í sjálfboðavinnu og allar tekjur vefsins fara í að byggja hann upp og gera hann betri fyrir hlaupasamfélagið.

Árið 2020 síðan leit dagsins ljós ný útgáfa af hlaup.is, þar sem útliti vefsins og þjónustu var umbylt. Lykilþættir eins og hlaupadagskráin, myndbirtingar, birting úrslita og skráningarkerfi voru endurhannaðir með þarfir íslenska hlaupasamfélagsins í huga. Nú geta hlauparar einnig stofnað eigið svæði á hlaup.is þar sem þeir geta safnað saman myndum, úrslitum og skráningum á einn stað.

Ennþá er stefnt að því að bæta vefinn en það krefst fjármagns sem erfitt er að fá. Því viljum við minna á að hægt er að styrkja hlaup.is með lágum mánaðarlegum greiðslum.

Einnig viljum við minna íslenska hlaupasamfélagið á að beina viðskiptum sínum til hlaup.is t.d. með myndakaupum og hlauphaldara á að nýta sér skráningarþjónustu hlaup.is. Með því að versla við hlaup.is þá styður þú við betri þjónustu við íslenska hlaupasamfélagið. Einnig má bæta við að hlaup.is er frábær auglýsingakostur fyrir fjölmörg fyrirtæki og við erum alltaf að leita að fyrirtækjum sem eru tilbúin að gerast bakhjarlar hlaup.is.

Núverandi bakhjarlar hlaup.is eru Útilíf og Fætur toga og þökkum við þeim kærlega fyrir stuðninginn.

Þið getið alltaf haft samband á hlaup@hlaup.is.