Langhlaupari ársins
Kári Steinn Karlsson og Elísabet Margeirsdóttir eru Langhlauparar ársins 2014 að mati hlaupara og lesenda hlaup.is. Verðlaunin voru afhent í sjötta skipti laugardaginn 7. febrúar en verðlaun voru veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í karla- og kvennaflokki. Kári Steinn hlaut 3535 stig og Elísabet 3254 stig. Í öðru sæti urðu Þorbergur Ingi Jónsson (3151 stig) og Arndís Ýr Hafþórsdóttir (3104 stig) og í þriðja sætinu urðu Ívar Trausti Jósafatsson (2814 stig) og Helen Ólafsdóttir (3015 stig).
Fjöldi tilnefninga barst frá lesendum til langhlaupara ársins 2014 en samtals voru 29 hlauparar tilnefndir, þar af 12 konur og 17 karlar. Í ár var kosið á milli sex hlaupara í hvorum flokki fyrir sig og fór einkunnagjöfin fram þannig að gefin voru stig frá 1 upp í 6. Í kosningunni sjálfri greiddu 850 hlauparar atkvæði.
Allir kjósendur fóru sjálfkrafa í pott þaðan sem nafn Kolbrúnar Katarínusardóttir á Akranesi var dregið og hlýtur hún að launum Brooks hlaupaskó. Hún gat ekki verið viðstödd verðlaunaafhendinguna.
Allir hlauparar sem tilnefndir voru til Langhlaupara ársins 2014 (eða fulltrúar)Frá vinstri: Arndís Ýr Hafþórsdóttir, Anna Sigrún Björnsdóttir, Andrea Kolbeinsdóttir, Elísabet Margeirsdóttir, Helen Ólafsdóttir Martha Ernstsdóttir, Arnar Pétursson, Ágúst Kvaran, Ívar Trausti Jósafatsson, faðir Stefáns Guðmundssonar og Þorbergur Ingi Jónsson.
Hlaup ársins
Kosning á hlaupi ársins var einnig kunngjörð á verðlaunaafhendingunni. Fjögurra skóga hlaupið hlaut titilinn Utanvegahlaup ársins 2014 og Vestmannaeyjahlaupið var kosið Götuhlaup ársins 2014. Rétt eins og með valið þá langhlaupurum ársins þá eru það lesendur hlaup.is sem velja hlaup ársins með einkunnagjöfum sínum.
Í öðru sæti sem Götuhlaup ársins 2014 var Nauthólshlaupið og í þriðja sæti var Óshlíðarhlaupið, sem er hluti af Hlaupahátíðinni á Vestfjörðum. Í öðru sæti sem Utanvegahlaup ársins 2014 var Vesturgatan sem einnig er hluti af Hlaupahátíðinni á Vestfjörðum og í þriðja sæti var Snæfellsjökulshlaupið.
Dregin voru út 8 útdráttarverðlaun þeirra sem gáfu hlaupum einkunn og aðalverðlaunin Adidas Adizero Adios Boost hlaupaskó hlaut Sóley Björgvinsdóttir, Akureyri. Hún gat ekki verið viðstödd verðlaunaafhendinguna.
Fulltrúar bestu götuhlaupa og utanvegahlaupa ársins 2014. Frá vinstri: Rán Kristinsdóttir og Fannar Baldursson sem sjá um Snæfellsjökulshlaupið, Martha Ernstsdóttir tók við verðlaunum fyrir hönd Óshlíðarhlaupsins og Vesturgötunnar, Guðrún Arngrímsdóttir sem tók við viðurkenningu fyrir hönd Fjögurra skóga hlaupsins og Magnús Bragason einn af aðstandendum Vestmannaeyjahlaupsins. Á myndina vantar Guðríði Maríu Jóhannesdóttir fulltrúa Nauthólshlaupsins.