Skráning hafinn á hlaupanámskeið hlaup.is - hefst 7. mars

birt 04. mars 2018

Þátttakendur á hlaupanánmskeiði hlaup.is.Viltu koma þér í gír fyrir hlaupasumarið? Þá er hlaupanámskeið hlaup.is rétta leiðin. Þar færðu þekkingu og verkfærin til að ná því mesta út úr þeim tíma sem þú eyðir í æfingar. Farið er yfir flestar hliðar hlaupanna út frá ýmsum sjónarhornum. Náðu þér í forskot fyrir hlaupasumarið og örlítinn innblástur í leiðinni.Fyrirlestrarform og verklegur tímiNæsta fræðslunámskeið hlaup.is fyrir hlaupara, byrjendur og lengra komna verður haldið miðvikudaginn 7. mars og mánudaginn 12. mars milli kl. 18 og 21:30 og einn verklegur tími fimmtudaginn 15. mars kl. 17:15-18:30. Á námskeiðinu er farið yfir helstu atriði í tengslum við hlaupaþjálfun og flest þau atriði sem huga þarf að í tengslum við hlaup.

Ef þú ert byrjandi eða búin(n) að hlaupa í einhvern tíma og langar til að ná meiri hraða og úthaldi, þá er hlaupanámskeið hlaup.is fyrir þig! Tryggðu þér sæti strax. Athugaðu að þú getur fengið endurgreiðslu frá þínu stéttarfélagi.

Skráning á hlaupanámskeiðið er hér.

Nánari upplýsingar um hlaupanámskeið hlaup.is.

Ummæli hlaupaþjálfara:

Margrét Elíasdóttir, þjálfari KR-skokk
"Frábært námskeið, virkilega vandað og vel farið yfir allt sem við kemur hlaupum bæði fyrir byrjendur og lengra komna.
Mun nýtast mér mikið í minni þjálfun hjá KR-skokk. Mæli heilshugar með þessu námskeiði fyrir alla hlaupara."

Ívar Trausti Jósafatsson, hlaupaþjálfari Þríkó.
"Ég fór á tveggja kvölda Fræðslunámskeið hjá Torfa á hlaup.is í september 2014.
Líkaði virkilega vel og út frá mínu sjónarhorni sem hlaupara og þjálfara sé ég námskeiðið sem ávinning fyrir alla.
Farið var yfir alla þætti sem skipta máli í þjálfun, góð upprifjun á ýmsu og margt nýtt lært.
Námsefnið hjálpar svo sannarlega í þjálfun".

Agnar Jón Ágústsson, maraþonhlaupari og forsvarsmaður Hlaupahóps Stjörnunnar     
"Virkilega vandað, yfirgripsmikið og skemmtilegt námskeið um hlaup hjá Torfa.  Fór á tveggja kvölda námskeið veturinn 2015. Þetta er námskeið sem nýtist öllum hlaupurum, bæði þeim sem hafa reynslu og þekkja vel til, þeim sem eru að byrja og allt þarna á milli. Efnið er vel sett upp, farið er yfir alla þætti sem skipta máli í hlaupum. Torfi er skemmtilegur fyrirlesari og heldur manni vel við efnið allan tímann og setur hlutina í samhengi. Mæli eindregið með þessu námskeiði hans Torfa".