Mikkeller Running Club Reykjavík

Reykjavík

Skokkhópurinn Mikkeller Running Club Reykjavik var stofnaður fyrr á árinu. Móðurklúbburinn er alþjóðlegi hlaupahópurinn Mikkeller Running Club  sem var stofnaður á síðasta ári í Kaupmannahöfn af Mikkel Borg Bjergsjö, stofnanda Mikkeller brugg veldisins. Mikkel er mikill hlaupari og á yngri árum fór hann á íþrótta námsstyrk til Bandaríkjanna og var handhafi nokkurra hlaupameta í Danmörku um tíma.

Hugmyndin er einföld; Halda sér í formi. Og drekka góðan bjór að hlaupi loknu.

Hópurinn hittist á Mikkeller & Friends á Hverfisgötu 12, kl. 11:30 fyrsta laugardag í hverjum mánuði. Tvær leiðir eru í boði, 5km og 10km. Hér er ekki um keppni að ræða heldur félagslegan viðburð til að kynnast fólki og hafa gaman saman.

Mikkeller Running Club Reykjavik: https://www.facebook.com/mikkellerrunningclubrvk
Mikkeller
 Running Club (global): https://www.facebook.com/mikkellerrunningclub