Sahara eyðimerkurmaraþonið 2009; þátttaka Íslendinga - Ágúst Kvaran

birt 31. maí 2009

Dagana 29.3. - 4.4.2009 fór fram 24. eyðimerkurmaraþonið í Marokko („Marathon des Sables"). Meðal þátttakenda voru Ágúst Kvaran (rásnúmer 177), sem er gamalreyndur í langhlaupum og á að baki nokkur 100 km hlaup og Justin Bjarnason (rásnumer 271), sem er af íslensku bergi brotinn, búsettur í Englandi.

Hér getið þið lesið frásögn Ágústar af þátttöku hans og Justin í þessari miklu þrekraun.