Vecct götumílan var haldin í fyrsta skipitð þann 28. apríl. Hlaupið var haldið á kvartmílubrautinni í Hafnarfirði í þremur flokkum, Opnum flokki, Elítu flokki karla og Elítu flokki kvenna. Flestir af bestu hlaupurum landsins tóku þátt. Aðstæður voru ekki sem bestar töluverður vindur og kalt en öll framkvæmd til fyrirmyndar á þessu Íslandsmóti í götumílu.
Hlaup.is var á staðnum og tók vídeó af hlaupurum í brautinni og verðlaunaafheindunni, sem má sjá hér fyrir neðan. Við tókum einnig myndir af hlaupurunum á sama stað sem eru birtar á hlaup.is. Vissir þú að með því að skrá þig inn á Mínar síður hlaup.is með rafrænum skilríkjum, þá getur þú merkt allar myndir af þér og safnað á prófílinn þinn? Þú getur einnig styrkt hlaup.is með því að kaupa mynd.
Úrslitin eru líka á hlaup.is og ef þú tókst þátt þá getur þú gefið hlaupinu einkunn með því að skrá þig inn á Mínar síður hlaup.is og samþykkja tímann í hlaupinu.
Elítu flokkur kvenna
Elítu flokkur karla
Elítu flokkur karla kemur í mark
Verðlaunaafhending
