Víðavangshlaup ÍR 2026 - Vídeó, myndir og úrslit

uppfært 26. apríl 2026

Víðavangshlaup ÍR var að venju haldið á Sumardaginn fyrst, en hlaupið er 5 km.

Hlaup.is var á staðnum og tók vídeó af hlaupurum eftir 4,5 km sem má sjá hér fyrir neðan. Við tókum einnig myndir af hlaupurunum á sama stað sem eru birtar á hlaup.is. Vissir þú að með því að skrá þig inn á Mínar síður hlaup.is með rafrænum skilríkjum, þá getur þú merkt allar myndir af þér og safnað á prófílinn þinn? Þú getur einnig styrkt hlaup.is með því að kaupa mynd.

Úrslitin eru líka á hlaup.is og ef þú tókst þátt þá getur þú gefið hlaupinu einkunn með því að skrá þig inn á Mínar síður hlaup.is og samþykkja tímann í hlaupinu.

Hlauparar eftir 4,5 km eða 2 km (skemmtiskokk) - Fyrri hópur

Hlauparar eftir 4,5 km eða 2 km (skemmtiskokk) - Seinni hópur