Á Fram Atwork - Skagastrandarhlaupið

Um hlaupið

  • Vegalengdir1 km, 5 km, 10 km, 18 km
  • Dagsetning19. júlí 2026

Á Fram Atwork - Skagastrandarhlaupið fer fram Sunnudagurinn 19. júlí 2026, kl. 14:00.

Vegalengdir

Boðið er upp á 5 km og 10 km götuhlaup, 1 km skemmtiskokk og 18 km utanvegahlaupið (400m hækkun) ATWORK MEGA TRAIL. Hlaupið er FRÍ vottað, fyrir utan skemmtiskokkið. Mynd af 18 km hlaupaleiðinni er neðst á þessari síðu.

1 km skemmtiskokkið, sem er kjörið fyrir yngstu hlauparana, verður ræst kl. 15:30 frá höfninni og hlaupinn stuttur hringur sem endar í sama endamarki og hin hlaupin. Oft hlaupa foreldrar við hlið unganna sinna og með því móti átt sameiginlega reynslu á hlaupabrautinni og búið til góðar minningar og stemmingu.

Verðlaun

Peningaverðlaun í boði fyrir fyrstu þrjá í 5 km, 10 km og ATWORK MEGA TRAIL 18 km utanvegahlaupinu.

Verðlaun verða veit fyrir fyrstu þrjú sætin í hverri vegalengd og viðurkenningar í öllum flokkum.

Rástímar
  • ATWORK MEGA TRAIL 18 km utanvegahlaupið verður ræst frá höfninni kl. 14:00 og hlaupið sem leið liggur upp að Spákonufelli og hringinn í kringum fellið og til baka að höfninni.
  • 5 km og 10 km hlaupið verður ræst kl 14:10 frá höfninni. Hlaupaleiðin er einn hringur um götur Skagastrandar, en tveir hringir í 10 km hlaupinu.
  • 1 km skemmtiskokkið er kjörið fyrir yngstu hlauparana og oft hlaupa foreldrar við hlið unganna sinna og með því móti átt sameiginlega reynslu á hlaupabrautinni og búið til góðar minningar og stemmingu.

Skráning og afhending keppnisnúmera

Skráning fer fram á netskraning.is, hægt er að skrá sig þar til kl. 21:00, 18. júlí.

Afhending keppnisnúmera fer fram í íþróttahúsinu frá kl. 11 til 13:45 þann 19. júlí. Keppnisnúmer verða einnig afhent 18. júlí frá kl. 16-18 hjá Atwork Skagaströnd sem stendur við Oddagötu.


Hlaupið er skipulagt í samvinnu við Ungmennafélagið Fram og allur ágóði af hlaupinu rennur til þess, til áframhaldandi uppbyggingar á miðpunkti Norðvesturlands.

Ekkert aldurstakmark er í götuhlaupin en aldurstakmark er 18 ára (f. 2008) í utanvegahlaupið.

Innifalið í skráningargjaldi:

  • Drykkur í marki
  • Kökuhlaðborð í íþróttahúsinu
  • Peningaverðlaun til sigurvegara
  • Verðlaun fyrir fyrstu þrjú sæti, karla og kvenna í hverjum flokki og hverri vegalengd
  • Brautar- og öryggisgæsla
  • Frítt í sund í sundlauginni á Skagaströnd
  • Aðgangur að hjúkrunarfólki
  • Salernisaðstaða og sturtuaðstaða
  • Flutningur til byggða fyrir þau sem ekki ná tímamörkum í Atwork Mega Trail Run sem er 2,5 klst
  • Keppnisnúmer, tímataka og vottaður árangur


Eftir hlaup verður boðið upp á veglegar veitingar í íþróttahúsinu og allir þátttakendur fá frítt í sund og gufu að loknu hlaupi. Einnig verður Spákonuhof og veitngarhús staðarins opin. Hægt að panta taldstæði og þar er frisbí gólfvöllur staðsettur eða hótelgistingu ásamt því að skella sér í strandblak.

Aðrar upplýsingar

Hlaupið er skipulagt í samvinnu vð Ungmennfélagið Fram og allur ágóði rennur til þess til áframhalda uppbyggingar á miðpunkti Norðvesturlands.

  • Nánari upplýsingar: frida@heilsutorg.is eða Fríða Rún Þórðardóttir, sími 898 8798
  • Facebook: aframatwork_skagastrandahlaupið
  • Instagram: aframatwork_skagastrandahlaupið

Kort af 18 km hlaupaleið
Skagastrandarhlaupið 18 Km Spákonufellshringurinn
18 km hlaupaleið