Þátttökugjald

  • 10 km (16 ára og eldri f. 2005 og fyrr)3.500 kr
  • 10 km (15 ára og yngri f. 2006 og síðar)500 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir10 km
  • Dagsetning28. júlí 2021
Sjá úrslit Myndasafn úr hlaupinu

Adidas Boost hlaupið fer fram miðvikudaginn 28. júlí kl. 20:00.

Um er að ræða skemmtilegt hlaup á hraðri braut. Tilvalið til að bæta 10 km tímann sinn rétt fyrir Verslunarmannahelgina.

Staðsetning

Hlaupið hefst við Rafstöðvarheimilið í Rafstöðvarbrekkunni í Elliðaárdal. Bílastæði neðst við Rafstöðvarveg. Einnig hægt að leggja við Ártúnsskóla og eða Árbæjarsafn sem er stutt frá upphafi og enda hlaupsins. Fólk er hvatt til að koma gangandi/hjólandi t.d úr Fossvogi, Breiðholti, Árbæ, Ártúnsholti og víðar enda aðgengi með göngustígum orðið virkilega gott í Elliðaárdal.

Eftir hlaupið verður gaman á svæðinu, næring, drykkir, verðlaunaafhendingar, útdráttarverðlaun, tónlist og stemning. Íþróttadrykkur verður í boði nálægt 7 km og á endamarkssvæði.

Vegalengd

10 km hlaupaleið sem ætti að vera fýsilegur kostur til bætinga að mati skipuleggjanda.

Hlaupaleið

Hægt er að sjá kort af leiðinni hér neðst á síðunni. Hlaupaleiðin er 10 km, löglega mæld af FRÍ. Heildarfall (lækkun) í hlaupaleið er um 9 metrar sem er löglegt, en 10 km hlaup má falla/lækka sem nemur einum metra fyrir hvern kílómetra til að teljast innan löglegra marka.

Hlaupið hefst efst í Rafstöðvarbrekkunni í Elliðaárdal og hlaupið er upp Elliðaárdalinn undir brúna við stífluna, að Fylkisvelli og Árbæjarsundlaug og meðfram Fylkisvelli og síðan til hægri yfir brúna. Síðan göngustígar niður Elliðaárdalinn, alla leið að undirgöngum inn í Fossvog, framhjá Víkingsheimili, á hjólastíg mest alla leið í Fossvogsdal, nú í ár með smá breytingu á braut er farið nánast alla leið inn Fossvogsdal og snúið við rétt áður en komið er að Svartaskógi og svo göngustígur til baka, framhjá Víkingsheimili, undirgöng og beint yfir Elliðaárdalinn á Rafstöðvarveg, framhjá gömlu rafstöðinni og endasprettur áfram og aðeins inn í Rafstöðvarbrekkuna.

Minnum á breytingu 2020 sem verður áfram sem er að í stað þess að fara til vinstri inn í Elliðaárdal eftir Fossvoginn þá er hlaupið beint áfram úr undirgöngunum eftir nýja stígnum og beint yfir á Rafstöðvarveg. Í staðinn er hlaupið aðeins lengra inn Fossvoginn og snúið við síðar en áður. Þetta veldur því að brautin er enn hraðari en áður, einn snúningspunktur sem er örlítið víðari en áður og í Elliðaárdal eru færri beygjur.

Leiðin er teiknuð með það í huga að vera skemmtileg í flottu umhverfi að sumarkvöldi og samtímis hröð og því góð til bætinga. Eftir hlaup verður verðlaunaafhending og gaman í og við Rafstöðvarheimilið.

Flokkaskipting

Aldursskipting hjá báðum kynjum:

  • 15 ára og yngri
  • 16-29 ára
  • 30-39 ára
  • 40-49 ára
  • 50-59 ára
  • 60-69 ára
  • 70 ára og eldri

Verðlaun

Vinningar fyrir fyrstu þrjá í hlaupinu, karla og kvenna. Einnig fyrir sigurvegara í hverjum aldursflokki karla og kvenna. Glæsileg útdráttarverðlaun, m.a. reiðhjól eins og undanfarin ár.

Þátttökugjald og skráning

Þátttökugjöld eru eftirfarandi:

Forskráðir fyrir kl. 24 laugardaginn 24. júlí:

  • 2.500 kr fyrir 16 ára og eldri (f. 2005 og fyrr)
  • Frítt fyrir 15 ára og yngri (f. 2006 og síðar)

Skráning eftir kl. 24 laugardaginn 24. júlí:

  • 3.500 kr fyrir 16 ára og eldri (f. 2005 og fyrr)
  • 500 kr fyrir 15 ára og yngri (f. 2006 og síðar)

Skráning fer fram hér á hlaup.is og lýkur þriðjudaginn 27. júlí kl. 24:00. Keppnisgögn eru afhent í GÁP í Faxafeni milli kl. 12 og 18 á hlaupdag.

Nánari upplýsingar

Á Facebook: Adidas Boost hlaupið
Nánari upplýsingar veitir Ívar Trausti, netfang ivar@komaso.is eða skilaboð í farsíma 8242266.