Akrafjall Ultra verður haldið í þriðja sinn laugardaginn 16. maí 2026. Hlaupið er utanvegahlaup, en haldið á Akranesi og er því aðgengilegt fyrir flesta sem vilja prófa utanvegahlaup nálægt höfuðborgarsvæðinu.
Allar vegalengdir gefa ITRA stig og eru er því viðurkennd sem forhlaup fyrir Laugavegshlaupið sem dæmi.
Vegalengdir
Athugið að tímamörk eru í öllum vegalengdum, sjá lista hér fyrir neðan.
- 10 km og ca. 50-100m hækkun.
- 20 km og ca. 650m hækkun. Tímamörk í 20 km eru 4 klst.
- 27 km og ca.1250m hækkun. Tímamörk í 27 km eru 5 klst.
- 46 km og ca. 2.100m hækkun. Þrjú tímamörk: 1) Tímamörk til að klára 8 klst 2) 3:30 klst í drykkjastöð á 22km 3) 5:30 klst í drykkjarstöð á 35 km.
Einnig er boðið upp á 1 km krakkahlaup (3-12 ára) sem hefst kl. 14:00.
Skráning
Skráning fer fram hér á netskraning.is.
Afhending gagna
- Hlaupagögn verða afhent í Sportvörum (dagsetning kemur seinna inn) Dalvegi 32 (25% afsláttur af skóm, fatnaði og hlaupatengdum vörum fyrir þá sem mæta að sækja númerið sitt)
- Má einnig nálgast hlaupagögn á hlaupadag frá kl. 06:30 í Ultraform Akranesi, Ægisbraut 29, fram að hlaupi
- Hægt verður að sækja hlaupagögn fyrir vini og aðra
Staðsetning og tímasetning
Hlaupið verður ræst hjá UltraForm Akranesi að Ægisbraut 29 en endar á Akranesvelli.
Rástímar:
- 46 km - Ræsing kl. 07:00
- 27 km - Ræsing kl. 09:00
- 20 km - Ræsing kl. 10:00
- 10 km - Ræsing kl. 11:00
Drykkjarstöðvar
Ein drykkjarstöð verður á bílaplaninu við Akrafjall sem er aðeins aðgengileg fyrir einstaklinga í 20 km og 27 km hlaupunum og önnur hinumeginn við fjallið fyrir 46 km hlaupara.
- Hlauparar í 20 km hlaupinu fara tvisvar í gegnum drykkjarstöðina, eftir 9,6 km og aftur eftir ca. 13,2 km.
- Hlauparar í 27 km hlaupinu fara líka visvar í gegnum drykkjarstöðina, eftir 9,6 km og aftur eftir ca. 13,2 km (ekki fleiri drykkjastöðvar út af ITRA reglum)
- Hlauparar í 46 km fara þrisvar gegnum drykkjarstöð á bílaplaninu við Akrafjall 9.6 km og svo ca. 22 km og 35km (bílastæðið við Akrafjall) og svo er hægt að ná sér í vatn í læk í km 41 eftir síðasta tindinn (Geirmundartindur)
Engin drykkjarstöð verður í brautinni fyrir 10 km. Endilega vera með eigið ílát, en það verða einhver glös
Boðið verður upp á:
Vithit Energy drykk, vatn og magic, Holle súkkulaði, Clif bar og Corny soft Protein og banana og epli
Leiðarlýsing
Kort af hlaupaleiðunum eru neðst á þessari síðu. Athugið að 10 km, 20 km og 27 km eru í sitthvoru laginu (layer) og því þarf að velja hvaða kort er verið að skoða.
Athugið að hlaupið byrjar og endar ekki á sama stað.
