Þátttökugjald

  • 5,6 km3.500 kr
  • 10 km3.500 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir5,6 km, 10 km
  • Dagsetning12. júní 2024
Sjá úrslit Myndasafn úr hlaupinu

Álafosshlaup Scarpa verður haldið miðvikudaginn 12. júní, í Mosfellsbæ og verður ræst kl. 18:00. Hlaupið verður frá Varmárvelli um austursvæði Mosfellsbæjar og býður Mosfellsbær öllum þátttakendum í sund í Varmárlaug að hlaupi loknu.

Skoðaðu myndir frá:

Vegalengdir

Boðið verður upp á 2 vegalengdir, u.þ.b 5,6 km og u.þ.b 10 km. Tímataka er með flögutímatöku.

Skráning

Forskráning fer fram hér á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu og lýkur kl. 8:00 á miðvikudagsmorgni 12. júní.  Hægt verður að skrá sig í Vallarhúsinu á hlaupdegi frá kl. 16:30. Forskráning er ódýrari en skráning á staðnum.

Þátttakendur sem velja að kaupa sérmerkta þátttökumedalíu á 1.000 kr geta sótt hana til sjálfboðaliða í Vallarhúsinu við markið strax eftir að þau ljúka hlaupinu.

Afhending hlaupagagna

Afhending hlaupagagna fer fram þriðjudaginn 11. júní í verslun Fjallakofans, Hallarmúla 2 og frá kl. 16:30 á hlaupadegi 12. júní í Vallarhúsinu við Varmárvöll.

Verð
  • Einstaklingur 3.500 kr. (4.500 kr. ef skráð á staðnum)
  • Fjölskyldur (hjón með börn) borga ekki meira en 7.000 kr. (8.000 kr. ef skráð á staðnum). Skrá þarf fjölskylduna á sama tíma og nota afsláttarkóðann: ALA-FJOLSK til að borga fast gjald 7.000 kr.
  • Þátttökumedalíu: 1.000 kr.

Þess ber að geta að allur ágóði hlaupsins fer í barna og unglingastarf frjálsíþróttadeildar Aftureldingar.

Aðstaða

Hægt er að geyma töskur í Vallarhúsi við Varmárvöllinn. Búningsaðstaða er við sundlaug Varmár (Íþróttamiðstöð) og ókeypis er í sund fyrir þátttakendur eftir hlaupið í Varmárlaug. Ath, engin ábyrgð er tekin á því sem geymt er í Vallarhúsinu.

Hressing verður í boði fyrir alla hlaupara að loknu hlaupi við markið.

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu sætin í báðum flokkum. Útdráttarverðlaun verða veitt en dregið verður úr hlaupanúmerum.

Álafosshlaup 2023 Sigurvegarar Kvenna
Sigurvegarar kvenna 2023
Álafosshlaup 2023 Sigurvegarar Karla
Sigurvegarar karla 2023
Upplýsingar

Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá Teiti Inga í síma 842-2101 eða á netfanginu frjalsar@afturelding.is.

Einnig á Facebook síðu hlaupsins og þar er hægt að senda inn fyrirspurnir.

Hlaupaleiðin

Hægt er að sjá hlaupaleiðina hér neðst á þessari síðu.

Hlaupið er eftir merktum leiðum, en samt óvenjulegum, göngustígum og malarvegum. Á brattann er að sækja fyrri helming en síðan er farinn malarvegur eða stígar niður í mót. Drykkir verða veittir í hlaupi í 10 km leiðinni og við endamark fyrir alla. Heildarhækkun í 10 km brautinni er um 130 metrar.

Hlaupið er frá Varmárvelli framhjá knattspyrnuvelli Aftureldingar, gegnum útivistarsvæði Mosfellinga við Stekkjarflöt (aparóló) og fram hjá Álafossi sjálfum. Áfram er haldið upp í gegnum Reykjalundarskóg og framhjá Reykjalundi. Þaðan er hlaupin gatan Engjavegur og göngu/reiðstígur í framhaldi upp á Bjargsveg.  Hér skiptast leiðir og þeir sem velja styttri vegalengdina þræða sig til baka á stíg meðfram Varmá. Stígurinn er torfærinn fyrstu 100 til 200 metrana, mikið hefur runnið úr honum í vorleysingunum og talsvert er um trjárætur og stubba sem standa uppúr stígnum. Hér þarf því að fara mjög varlega. Áfram er svo hlaupið meðfram Varmánni og markið er við Varmárvöllinn á sama stað og ræst var.

Þeir sem ætla lengri leiðina hlaupa Bjargsveginn að Varmá og beygja þar til vinstri inn hjá útihúsum Reykjabúsins. Þar fyrir ofan er farið yfir Varmá á brú og hlaupið upp brekkuna í átt að Reykjaborginni. Þegar komið er upp fyrir byggð er beygt til hægri og hlaupinn göngu/reiðstígur meðfram Hádegisfelli, fram hjá svæði Skógræktarfélags Mosfellsbæjar í átt að Hafravatni. Þegar komið er að Hafravatnsvegi er beygt til hægri og hlaupið upp brekkuna að drykkjarstöð. Eftir drykkjarstöðina er haldið áfram í átt að Úlfarsfelli á malarvegi að Skarhólabraut, hún er þveruð og hlaupið að Krikahverfi. Þar fer loks að halla undan fæti og stígurinn hlaupinn undir Reykjaveginn í nýju göngunum og þaðan beina leið áfram stíginn aftur niður að Stekkjarflöt. Þá verður hlaupið í mark við Varmárvöllinn aftur á sama stað og ræst var.

Sjá hlaupaleiðina á Relive.

Saga hlaupsins

Álafosshlaupið er sögufrægt hlaup sem fyrst var hlaupið árið 1921 að frumkvæði Sigurjóns Péturssonar á Álafossi og hefur verið haldið með hléum síðan. Framan af var hlaupið á milli Álafoss og Melavallarins í Reykjavík, síðan færðist hlaupið í nágrenni Álafoss. Kveikjan var sigling Einars Péturssonar, bróður Sigurjóns, um Reykjavíkurhöfn á kappróðrarbáti sínum með hvítbláa fánann í skut þann 12. júní 1913. Fáninn var tekinn í vörslu danskra varðskipsmanna. Hermt er að atburðurinn hafi hleypt auknum krafti í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á þeim tíma. UMFÍ tók fánann síðar upp og gerði að sínum.

Frjálsíþróttadeild Aftureldingar þakkar styrktaraðilum hlaupsins kærlega fyrir stuðninginn.

Álafosshlaupið Scarpa Logo H400