Um hlaupið

  • Vegalengdir5 km, 10 km
  • Dagsetning8. júlí 2026

Aukakrónuhlaup Ármanns verður ræst fyrir utan höfuðstöðvar Landsbankans, Reykjastræti 6, miðvikudaginn 8. júlí klukkan 20:00. 

Um hlaupið
  • Hlaupið hefur í gegnum árin verið þekkt fyrir flata og hraða braut
  • Hlaupavegalengdir í boði eru 5 km sem ræstir eru kl. 19:00 og 10 km hlaup ræst kl. 20:00.
  • Peningaverðlaun í formi inneignar hjá Aukakrónur verða veitt fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna í 10km, auk sigurvegara í 5 km.
  • Vegleg útdráttarverðlaun verða í boði.
  • Hlaupið er jafnframt Íslandsmót í 10 km hlaupi

Hlaupaleið

Sjá Google kort neðst á þessari síðu.

Leiðin er löglega mæld og hlaupið vottað af FRÍ.

Hlaupaleiðin - 10 km
Leiðin (sjá mynd 1) er löglega mæld og hlaupið vottað af FRÍ. Ræst er við höfuðstöðvar Landsbankans við Reykjastræti 6 kl. 20.00. Við ræsingu er hlaupið til austurs út á Hörputorg, þaðan er beygt út á hjóla og göngustíg meðfram Kalkofnsvegi, beygt inn meðfram Geirsgötu til vesturs og hlaupið um Suðurbugt inn á Miðbakka og þaðan um Austurbakka að Hörputorgi. Þaðan er haldið áfram í austur áfram inn á göngustíg meðfram Sæbrautinni, þar sem stígar eru aðskildir er hlaupið á hjólastíg í austurátt. Eftir stígum er haldið sem leið liggur að vitanum við Viðeyjarferjuna þar sem snúið er við og hlaupið til baka eftir göngustíg. Þegar yfir Hörputorg er komið er haldið rakleiðis í átt að Reykjastræti þar sem endamarkið er við hlið höfuðstöðva Landsbankans.

Hlaupaleiðin - 5 km
Leiðin (sjá mynd 3) er löglega mæld og hlaupið vottað af FRÍ. Ræst er við höfuðstöðvar Landsbankans við Reykjastræti 6 kl. 19.00. Við ræsingu er hlaupið til austurs yfir Hörputorg og inn á göngustíg meðfram Sæbrautinni og þar sem göngustígar eru tvískiptir er hlaupið á hjólastíg í austurátt. Þegar komið er í námunda við dælustöð við Kirkjusand er snúið við inn á göngustíg og hlaupið á honum í vesturátt. Þegar yfir Hörputorg er komið er haldið rakleiðis í átt að Reykjastræti þar sem endamarkið er við hlið höfuðstöðva Landsbankans.

Skráning

Skráning fer fram á netskraning.is.

Afhending keppnisnúmera fer fram í höfuðstöðvum Landsbankans, Reykjastræti 6, 101 Reykjavík, mánudag og þriðjudag 6. og 7. júlí milli kl. 16 og 18. Einnig er hægt að nálgast hlaupanúmerin þar á hlaupdegi frá kl. 16 þangað til hálftími er í ræsingu. Gengið er inn um aðalinngang.

Aðstaða

Aðgengi verður fyrir hlaupara og aðra gesti í anddyri höfuðstöðva Landsbankans Reykjastræti 6 hlaupadaginn. Hlauparar eru hvattir til að nýta sér almenningssamgöngur eða aðra virka ferðamáta. Fyrir þá sem koma akandi er úrval bílakjallara í næsta nágrenni, einn slíkur er undir höfuðstöðvum Landsbankans og hægt er að ganga úr bílakjallaranum beint upp í anddyri bankans. Hlauparar geta fengið að geyma fatnað innandyra meðan á hlaupinu stendur auk þess að komast á salerni.

Verðlaun

Vegleg útdráttarverðlaun frá samstarfsaðilum Aukakróna Landsbankans.

  • 5 km hlaup: Verðlaunapeningar verða veittir fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna. Auk þess fá sigurvegarar í karla og kvennaflokki 30 þúsund Aukakrónur hvort.
  • 10 km hlaup: Verðlaunapeningar verða veittir fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna. Auk þess fá efstu þrír af hvoru kyni Aukakrónur. 80 þúsund Aukakrónur fyrir 1. sæti, 45 þúsund Aukakrónur fyrir 2. sæti og 20 þúsund Aukakrónur fyrir 3. sæti.

Aldursflokkar eru í samræmi við reglugerð FRÍ um götuhlaup. Tekið er fram að samkvæmt reglugerðinni geta einstaklingar yngri en 12 ára ekki fengið árangur skráðan í afrekaskrá, þeim er þó heimilt að skrá sig í hlaupið. 

Keppt er til verðlauna í 10 km hlaupinu í eftirfarandi aldursflokkum beggja kynja þar sem sigurvegarinn fær verðlaunapening:

  • 12 ára
  • 13 ára
  • 14 ára
  • 15 ára
  • 16-17 ára
  • 18-19 ára
  • 20-22 ára
  • 23-39 ára
  • 40-44 ára
  • 45-49 ára
  • 50-54 ára
  • 55-59 ára
  • 60-64 ára
  • 65-69 ára
  • 70-74 ára
  • 75-79 ára
  • 80-84 ára
  • 85-89 ára
  • 90 ára og eldri

Skipuleggjendur

Framkvæmd hlaupsins er í höndum frjálsíþróttadeildar Ármanns.

Frjálsíþróttadeild Ármanns
kt. 491283-0339 
Engjavegi 7
104 Reykjavík
Símanúmer: +354 863 9980 (Örvar Ólafsson)
orvar@frjalsar.is